Róbert Aron hefur heyrt af áhuga í Þýskalandi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. desember 2014 18:00 Róbert Aron Hostert. Vísir/Vilhelm
Róbert Aron Hostert er á sínu fyrsta ári í atvinnumennsku en hann samdi við danska liðið Mors-Thy Håndbold eftir frábært tímabil með ÍBV. Róbert Aron gerði tveggja ára samning við Mors-Thy Håndbold. Hann byrjaði rólega en hefur verið að spila betur að undanförnu. „Ég hef heyrt orðróm um áhuga þýskra liða en ekkert þeirra hefur talað við mig. Á meðan það er ekkert fast í hendi þá held ég bara áfram að virða minn samning við Mors-Thy þar sem mér líður vel," sagði Róbert Aron Hostert við hbold.dk. „Ég veit samt af því að þýsk lið hafa talað við umboðsmanninn minn. Ég vil samt leggja áherslu á það að ég ætla mér að klára samning minn við Mors-Thy og hann gildir í eitt og hálft ár til viðbótar. Ég er samt ánægður með að heyra af þessum áhuga því það er merki um það að ég sé að gera góða hluti í Danmörku," sagði íslenski leikstjórnandinn við hbold.dk. Forráðamenn Mors-Thy Håndbold hafa ekki heyrt frá neinu þýsku liði. „Róbert hefur fallið vel inn í hlutina í félaginu og hefur spilað mjög vel að undanförnu. Það væri því eðlilegt ef að einhver félög hafa áhuga á honum," sagði Johannes Søndergård, yfirmaður hjá Mors-Thy Håndbold.
Handbolti Mest lesið Stríðinn hrafn fluttur á Laugardalsvöll Fótbolti Fegin að vera komin heim: „Þetta endaði ekkert vel“ Íslenski boltinn Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó Íslenski boltinn Ronaldo langtekjuhæsti íþróttamaður heims Fótbolti Vonast til að Man United sé tilbúið að selja sig á tæplega sjö milljarða króna Enski boltinn Fjórtán slösuðust þegar ekið var á áhorfendur Fótbolti Barcelona Spánarmeistari Fótbolti Ólympíumeistarinn hallar sér að Jesú og fjölskyldunni í kjölfar handtöku Sport Hörður kominn undan feldinum Körfubolti „Í lokin snýst þetta alltaf um okkur sjálfa“ Handbolti Fleiri fréttir Svona var blaðamannafundur Vals fyrir seinni úrslitaleikinn „Í lokin snýst þetta alltaf um okkur sjálfa“ Ótrúlegur Donni kom ekki í veg fyrir tap Aldís Ásta Svíþjóðarmeistari Íslendingar gerðu gæfumuninn í Íslendingaslögum Uppgjörið: Valur - Fram 33-37 | Bláir leiða úrslitaeinvígið EM-riðillinn: Ítalía, Pólland og Ungverjaland Patrekur verður svæðisfulltrúi Guðmundur Bragi frábær í stórsigri Jöfnuðu metin gegn Dortmund Allt opið hjá Degi sem kveður franska stórliðið Birtir gamla mynd af sér í Barcelona-treyju: „Stór draumur að rætast“ Varð að þegja yfir samningnum við Barcelona í margar vikur ÍBV sækir Jakob úr föllnu liði Gróttu Viktor Gísli búinn að semja við Barcelona Dóttir Lauge fæddist löngu fyrir tímann HSÍ ræður Roland Eradze sem markmannsþjálfara Strákarnir okkar í öðrum styrkleikaflokki Nýr forseti norska sambandsins spilaði hjá Þóri og Marit Breivik „Gerðum út um leikinn og ekki yfir miklu að kvarta“ Uppgjörið: Ísland - Georgía 33-21 | Fullt hús eftir stórsigur Ljóst hvaða þjóðir verða með Ísland á EM í handbolta Fínn leikur íslensku landsliðskvennanna dugði ekki Uppgjörið: Porrino - Valur 29-29 | Jafnt í fyrri leiknum „Maður veit alveg hver gulrótin er“ Aldís Ásta og félagar einum sigri frá sænska meistaratitlinum Alfreð reiður út í leikmenn sína Frá Eyjum til Ísraels Haukar fá einn markahæsta mann deildarinnar Lærisveinn Hannesar í tveggja ára bann fyrir hrottalegt brot Sjá meira
Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó Íslenski boltinn
Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó Íslenski boltinn