Innlent

Fólk á Akureyri hvatt til að halda sig innandyra

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ekkert ferðaveður er nú fyrir norðan.
Ekkert ferðaveður er nú fyrir norðan. Vísir/Auðunn
Mjög lítið skyggni er nú á Akureyri og töluverður snjór á götum, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni.

Verið er að moka helstu stofnleiðir en það gengur illa þar sem að það skefur alltaf aftur í. Færð er afar slæm í íbúðahverfum í bænum og er fólk hvatt til að vera ekki á ferðinni að óþörfu.

Björgunarsveitarmenn hafa verið og eru enn að aðstoða heilbrigðisstarfsfólk við að komast í og úr vinnu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×