Aðeins 2 af 18 spá því að Þórir og norsku stelpurnar vinni gullið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. desember 2014 17:00 Þórir Hergeirsson. Vísir/AFP
Norska kvennalandsliðið í handbolta er á leiðinni á EM í handbolta en liðið hefur verið afar sigursælt undir stjórn Íslendingsins Þóris Hergeirssonar. Norðmenn búast þó ekki við að Þórir og norsku stelpurnar vinni gull að þessu sinni. Norska kvennalandsliðið hefur unnið fjögur af síðustu fimm Evrópumótum kvenna og spilað alla úrslitaleiki á EM frá og með Evrópumótinu í Danmörku 2002 eða sex í röð. Norska blaðið Verdens Gang fékk átján handboltasérfræðinga til að spá fyrir um gengi norska liðsins á Evrópumótinu í Ungverjalandi og Króatíu sem hefst nú um helgina. Aðeins tveir af þessum átján spá því að Norðmenn vinni gullið en það eru þau Ole Gustav Gjekstad og Tonje Nöstvold. Þórir Hergeirsson hefur þurft að byggja upp nýtt landslið en átta af fjórtán leikmönnum gulliðsins á ÓL í London 2012 eru ekki lengur með liðinu. Tveir af þessum átján hafa litla trú á norska liðinu og telja að liðið komist ekki í undanúrslit en það gerðist á HM í Serbíu í fyrra þegar norsku stelpurnar enduðu í fimmta sæti. Flestir spekinganna búast hinsvegar við því að norska liðið komist í undanúrslit á sjöunda Evrópumótinu í röð og vinni til verðlauna. Noregur er með Danmörku í riðli á EM en danska liðið vann brons á HM í fyrra og er með gríðarlega öflugt lið á þessu móti. Fyrsti leikur norska liðsins er við Rúmeníu á sunnudaginn.
Handbolti Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Ipswich - Liverpool | Kemur fyrsti sigurinn? Enski boltinn Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Sjáðu rauða spjaldið sem Gísli fiskaði og fékk svo sjálfur Handbolti Fleiri fréttir FH - Stjarnan | Hefja tímann undir stjórn Arons Pálmarssonar Sjáðu rauða spjaldið sem Gísli fiskaði og fékk svo sjálfur „Var ekki langt frá því að tárast“ Sá besti í ham en meistarar Vals þurftu að hafa fyrir sigrinum Fullkomin byrjun eftir heimkomu Dags Árna Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli „Leikmenn í hópnum sem þurfa að taka við keflinu“ Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Haukur var markahæsti leikmaður síns liðs í naumu tapi Magdeburg hafði betur í jöfnum Íslendingaslag Titilvörnin byrjar vel hjá Díönu og Elínu Stórleikur Donna dugði skammt Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni Sjá meira