Innlent

Strætisvagnar hættir að ganga

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Leið 1 hætti að aka fyrr en áætlað var.
Leið 1 hætti að aka fyrr en áætlað var. vísir/gva
Strætisvagnar eru hættir að aka um götur bæjarins sökum veðurs. Vindhraði á höfuðborgarsvæðinu er töluverður og hafa borist fregnir af húsþökum sem eru að fjúka og trjám sem rifnað hafa upp með rótum. 

Ýmsar ferðir utan höfuðborgarsvæðisins, á vegum Strætó, falla niður. Er fólki bent á heimasíðu fyrirtækisins til að fylgjast með áætlunum.

Einhverjir leigubílar eru enn á ferli en þeir eru þó færri en vanalega. Pítsusendlar eru hins vegar hættir að keyra út flatbökur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×