Innlent

Svæðum lokað í Vestmannaeyjum: Fólk beðið að vera ekki á ferðinni

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Þakplötur eru að fjúka um hafnarsvæðið í Eyjum.
Þakplötur eru að fjúka um hafnarsvæðið í Eyjum. Vísir
Íbúar í Vestmannaeyjum eru beðnir um að vera ekki á ferðinni að nauðsynjalausu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Björgunarfélagi Vestmannaeyja.

Þakplötur fjúka um hafnarsvæðið og í nágrenni við það. Búið er að setja upp lokunarpósta við Strandveg, Hlíðarveg og fleiri staði. Fólk er þá einnig beðið að vera ekki í nágrenni við Flatir og þar fyrir norðan. 





Fleiri fréttir

Sjá meira


×