Handbolti

Bjarki fór illa með Emsdetten

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Bjarki átti frábæran leik í kvöld.
Bjarki átti frábæran leik í kvöld.
Bjarki Már Elísson fór á kostum þegar Eisenach vann 11 marka sigur, 38-27, á Emsdetten í þýsku B-deildinni í handbolta í kvöld.

Hornamaðurinn skoraði 11 mörk og er því kominn með 66 mörk í deildinni í vetur. Enginn leikmaður Eisenach hefur skorað fleiri mörk en Bjarki.

Hannes Jón Jónsson skilaði tveimur mörkum fyrir Eisenach sem er í 9. sæti deildarinnar.

Anton Rúnarsson skoraði fjögur mörk fyrir Emsdetten í kvöld og Ernir Hrafn Arnarson tvö, en Oddur Gretarsson var ekki á meðal markaskorara. Ólafur Bjarki Ragnarsson er enn frá vegna meiðsla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×