Innlent

Tilkynning Gísla Freys til fjölmiðla: „Get ekki lengur lifað í lygavef“

Bjarki Ármannsson skrifar
Gísli Freyr Valdórsson ítrekar að hann hafi ekki vitað að gjörðir hans væru ólöglegar.
Gísli Freyr Valdórsson ítrekar að hann hafi ekki vitað að gjörðir hans væru ólöglegar. Vísir/GVA
Gísli Freyr Valdórsson, sem í dag viðurkenndi fyrir saksóknara að hafa lekið trúnaðargögnum um hælisleitandann Tony Omos úr innanríkisráðuneytinu, segist í tilkynningu til fjölmiðla hafa brugðist trúnaði þeirra sem um fjallað og að hann verði nú að horfast í augu við gjörðir sínar.

Hann ítrekar að hann hafi ekki gert sér grein fyrir því að hann hafi brotið lög með því að hafa átt við minnisblað úr ráðuneytinu og sent til fjölmiðla. Hann segir mistök sín hafa falist í því að telja eðlilegt að upplýsa almenning á Íslandi betur um málefni Omos.

Gísli segist sjálfur bera ábyrgð á því að hafa spunnið í kringum sig „lygavef“ og að hann hafi logið að Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra þegar hún spurði hann hvort hann hefði sent minnisblaðið til fjölmiðla. 

Tilkynningu Gísla í heild sinni má sjá hér fyrir neðan.

Tilkynning frá Gísla Frey Valdórssyni

Ég kýs að stíga fram og viðurkenna að hafa afhent fjölmiðlum upplýsingar um málefni hælisleitenda sem höfðu verið í opinberri umræðu í nóvember 2013. Ég get ekki lengur lifað í lygavef sem ég sjálfur ber ábyrgð á að hafa spunnið í kringum mig. Það er ljóst að ég hef brugðist trúnaði þeirra einstaklinga sem um var fjallað og trausti Hönnu Birnu Kristjánsdóttur og samstarfsfólks í innanríkisráðuneytinu. Nú er mál að linni og ég verð að horfast í augu við gjörðir mínar. Mér hefur verið vikið úr starfi og nú bíð ég dóms í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Þegar ég afhenti fjölmiðlum upplýsingarnar var það gert í góðri trú. Þá gerði ég mér ekki grein fyrir alvarleika málsins, hvað þá að um lögbrot var að ræða. Það var dómgreindarbrestur af minni hálfu. Fjölmiðlar höfðu þá spurst fyrir um málið sem málsaðilar höfðu sjálfir haft frumkvæði að fjalla um opinberlega. En eðli þessara mála er viðkvæmt og stjórnsýslan getur ekki upplýst um alla anga þeirra. Mistök mín fólust í því að telja eðlilegt að upplýsa almenning á Íslandi betur um efni málsins frá fleiri hliðum en komið höfðu fram. 

Daginn eftir gerði ég mér grein fyrir að ég hafði tekið ranga ákvörðun. Í stað þess að vera maður til að viðurkenna mistök mín strax sagði ég ráðherra ósatt þegar hún spurði mig hvort ég hefði sent fjölmiðlum upplýsingarnar. Þar sem ég naut þá og síðar óskoraðs trausts ráðherra hafði hún enga ástæðu til að draga orð mín í efa.


Það má vera að reynsluleysi mitt í stjórnsýslu hafi gert það að verkum að ég gerði mér ekki grein fyrir alvarleika málsins. En tíminn leið og málið vatt uppá sig með afleiðingum sem ég sá ekki fyrir. Það varð því alltaf erfiðara fyrir mig að stíga til baka og viðurkenna að ég hafði ekki sagt satt frá í upphafi. 

Það er erfitt að útskýra af hverju ég tók ekki af skarið fyrr og viðurkenndi brot mitt. Mig tekur það mjög sárt gagnvart öllum þeim sem ég hef starfað með og hafa mátt sæta ásökunum í kjölfar þeirrar atburðarrásar sem ég ber ábyrgð á. Mig  tekur það sárt gagnvart fólki sem tekur þátt í stjórnmálum með það að leiðarljósi að berjast fyrir hugsjónum sínum af heiðarleika og mig tekur það sárt gagnvart almenningi sem á að geta treyst á fagmennsku í íslenskri stjórnsýslu. Ég brást þessu fólki en vil horfast í augu við mistök mín og biðja það fyrirgefningar.



Tengdar fréttir

Hanna Birna ber vitni í málinu

Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra er á meðal þeirra sem kvödd verða til vitnis í máli ríkissaksóknara á hendur Gísla Frey Valdórssyni.

Birgitta kallar eftir afsögn Hönnu Birnu

„Þetta breytir í raun ekki neinu nema að það er komið í ljós það sem maður vissi, að þetta skjal kom frá henni eða hennar nánasta starfsliði.“

Gísli Freyr neitar sök

Gísli Freyr Valdórsson, fyrrverandi aðstoðarmaður innanríkisráðherra, neitaði sök í lekamálinu svokallaða við þingfestingu málsins sem fram fór í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Yfirlýsing frá Gísla Frey: Segist fullviss um að verða sýknaður

"Svo virðist sem grundvallarafstaða ákæruvaldsins, sem felst í því að ekki sé gefin út ákæra nema yfirgnæfandi líkur séu á sakfellingu, sé að engu höfð,“ segir aðstoðarmaður innanríkisráðherra sem nú hefur verið vikið frá störfum.

Gísli Freyr með tæp 900 þúsund á mánuði

Fyrrverandi aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra, heldur óskertum launum á meðan mál hans er til meðferðar hjá dómstólum.

Skaðabótakröfum á hendur Gísla Frey vísað frá dómi

Ákæra saksóknara og bótakröfur á hendur Gísla Frey Valdórssyni, aðstoðarmanni innanríkisráðherra, skulu reknar sem sitt hvort dómsmálið. Þetta var niðurstaða héraðsdóms Reykjavíkur í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×