Formúla 1

Rosberg fljótastur á föstudegi

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Rosberg ætlar að berjast fram á síðasta hring.
Rosberg ætlar að berjast fram á síðasta hring. Vísir/Getty
Nico Rosberg var fljótastur á báðum æfingum dagsins fyrir Brasilíukappaksturinn. Nokkrir ökumenn glímdu vandamál tengd nýju slitlagi á Interlagos brautinni.

Helstu tíðindi frá fyrri æfingu dagsins eru að Daniil Kvyat á Toro Rosso varð þriðji á eftir Lewis Hamilton. Bæði Jenson Button á McLaren og Esteban Gutierrez á Sauber sátu mest alla æfinguna á þjónustusvæðinu vegna tæknivandræða.

Rosberg virðist ekki ætla að gefast upp í baráttunni um heimsmeistaratitil ökumanna. Hamilton leiðir með 24 stigum þegar tvær keppnir eru eftir. Rosberg varð þó fljótastur á seinni æfingu dagsins líka. Það eru öll merki á lofti um spennandi tímatöku og kappakstur.

Hamilton var rúmlega tveimur tíundu úr sekúndu hægari en Rosberg á seinni æfingunni, líkt og þeirri fyrri. Kimi Raikkonen varð þriðji á eftir Mercedes mönnum, rúmlega hálfri sekúndu á eftir Rosberg.

Ferrari bíll Fernando Alonso stóð í ljósum logum um miðbik æfingarinnar. Það gæti leitt til þess að Alonso ræsi frá þjónustusvæðinu líkt og Sebastian Vettel gerði síðustu helgi.

Tímatakan fer fram á morgun og hefst útsending á Stöð 2 Sport 3 klukkan 15:50, en keppnin fer fram á sunnudag og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport, útseding hefst þá klukkan 15:30.


Tengdar fréttir

Caterham má missa af tveimur keppnum

Bernie Ecclestone er tilbúinn að leyfa Caterham liðinu að sleppa tveimur næstu keppnum til að einbeita sér að því að finna kaupendur.

Hamilton fyrstur í mark í Austin

Lewis Hamilton á Mercedes vann bandaríska kappaksturinn, liðsfélagi hans, Nico Rosberg varð annar og Daniel Ricciardo varð þriðji.

Vettel sleppir væntanlega tímatökunni í Texas

Sebastian Vettel, fjórfaldur og ríkjandi heimsmeistari í Formúlu 1 segir að líklega muni hann sleppa tímatökunni. Tilgangurinn er að spara nýja vél sem sett verður í bílinn.

Bræður vilja bjarga Marussia

Bresk-indverskir bræður, Baljinder Sohi og Sonny Kaushal eru nú í samningaviðræðum við forsvarsmenn Marussia. Þeim virðist vera full alvara í að reyna að bjarga liðinu.

Marcus Ericsson til Sauber

Sænski ökuþórinn Marcus Ericsson hefur samið við Sauber liðið í Formúlu 1. Hann ók áður fyrir Caterham liðið sem nýlega lýsti yfir gjaldþroti.

Marussia missir af næstu keppni

Bernie Ecclestone, einráður formúlu 1 hefur staðfest að Marussia muni, ásamt Caterham liðinu missa af bandaríska kappakstrinum næstu helgi.

Caterham ætlar til Abú Dabí

Caterham undirbýr nú endurkomu til keppni í Formúlu 1. Eftir að hafa misst af keppninni í Texas mun liðið einnig missa af keppninni í Brasilíu um helgina. Caterham ætlar að koma til Abú Dabí sem er lokakeppni tímabilsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×