Formúla 1

Caterham ætlar til Abú Dabí

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Caterham ætlar að koma til baka.
Caterham ætlar að koma til baka. Vísir/Getty
Caterham undirbýr nú endurkomu til keppni í Formúlu 1. Eftir að hafa misst af keppninni í Texas mun liðið einnig missa af keppninni í Brasilíu um helgina. Caterham ætlar að koma til Abú Dabí sem er lokakeppni tímabilsins.

Caterham gat ekki mætt af fjárhagslegum ástæðum til keppni í Texas og vegna þess að bílarnir eru fluttir beint frá Texas til Brasilíu missir liðið líka af keppninni þar.

Bráðabyrða þátttökulisti fyrir 2015 var birtur nýlega. Á honum er að finna bæði Caterham og Marussia sem er í sömu stöðu og Caterham. Marussia mun ganga undir nafninu Manor. Það verður auðvelt að venjast því.

„Við erum að vona að núna taki nýr eigandi við sér og borgi okkur þáttökugjaldið, sem við höfum þegar greitt og klári hönnun 2015 bílsins,“ sagði Finbarr O´Connell, skipaður fjármálastjóri Caterham sem segir að ákveðið hafi verið að greiða þátttökugjaldið til að gera liðið söluvænna.

Það myndi líka auðvelda Caterham lífið ef það mætir til keppni í Abú Dabí. „Ég tel að við séum nokkuð örugg um að við mætum til Abú Dabí, annað kæmi mikið á óvart,“ sagði O´Connell að lokum.


Tengdar fréttir

Caterham má missa af tveimur keppnum

Bernie Ecclestone er tilbúinn að leyfa Caterham liðinu að sleppa tveimur næstu keppnum til að einbeita sér að því að finna kaupendur.

Haas: Fyrstu fimm árin snúast um að komast af

Gene Haas segir að fyrstu fimm árin hjá nýju formúlu 1 liði hans muni snúast um að komast af. Hann ætlar að læra af mistökum annarra nýrra liða í gegnum tíðina.

Stóru liðin ætla að skaffa litlu liðunum bíla

Bernie Ecclestone segir að samningur sem gerður hefur verið við stærri liðin í Formúlu 1 gæti leitt til þess að þau skaffi minni liðunum bíla. Þetta gæti komið til ef allt stefnir í mikla fækkun keppnisliða.

Bræður vilja bjarga Marussia

Bresk-indverskir bræður, Baljinder Sohi og Sonny Kaushal eru nú í samningaviðræðum við forsvarsmenn Marussia. Þeim virðist vera full alvara í að reyna að bjarga liðinu.

Marcus Ericsson til Sauber

Sænski ökuþórinn Marcus Ericsson hefur samið við Sauber liðið í Formúlu 1. Hann ók áður fyrir Caterham liðið sem nýlega lýsti yfir gjaldþroti.

Marussia missir af næstu keppni

Bernie Ecclestone, einráður formúlu 1 hefur staðfest að Marussia muni, ásamt Caterham liðinu missa af bandaríska kappakstrinum næstu helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×