Formúla 1

Hamilton fyrstur í mark í Austin

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Hamilton var óstöðvandi í dag.
Hamilton var óstöðvandi í dag. Vísir/Getty
Lewis Hamilton á Mercedes vann bandaríska kappaksturinn, liðsfélagi hans, Nico Rosberg varð annar og Daniel Ricciardo varð þriðji.

Öryggisbíllinn kom út við upphaf annars hrings. Adrian Sutil og Sergio Perez lentu í samstuði. Perez lenti aftan á Kimi Raikkonen og hafnaði svo á Sutil. Ökumenn hópuðust inn á þjónustuhlé í kjölfarið til að skipta um dekk. Öryggisbíllinn kom inn við upphaf fimmta hrings.

Sebastian Vettel skipti tvisvar um dekk á meðan öryggisbíllinn stjórnaði umferðinni. Hann var þá búinn að nota báðar dekkjagerðir og þurfti því ekki að taka annað þjónustuhlé til að fylgja reglunum. Hann tók þó fleiri vegna dekkjaslits.

Ricciardo komst fram úr Bottas með því að taka þjónustuhlé einum hring á undan. Valtteri Bottas þurfti nauðsynlega að komast fljótt fram úr til að missa ekki af liðsfélaga sínum, Felipe Massa sem var í þriðja sæti þegar hér var komið við sögu. Bottas komst þó ekki fram úr Ricciardo og það myndaðist þó nokkuð bil á frá Massa aftur til Ricciardo og Bottas.

Baráttan var gríðarleg í Texas í dag.Vísir/Getty
Nico Hulkenberg hætti keppni á 18. hring. Báðir Force India bílarnir voru því hættir keppni. Afleidd helgi fyrir liðið sem hugsanlega á að hættu að lenda í greiðsluvanda.

Hamilton náði forystunni af Rosberg á 24. hring. Hamilton virtist einfaldlega hafa meira grip og tók fram úr í miðri beygju. Þeir snertust næstum. Hamilton skildi Rosberg svo hægt en örugglega eftir.

Munurinn á Mercedesbílunum virðist vera vegna smá framvængsbreytinga sem hann lét framkvæma í fyrsta þjónustuhléi sínu. Bratti vængsins var aukinn og svo virðist sem það hafi aukið gripið talsvert og skipt sköpum.

Ricciardo náði þriðja sætinu af Massa á 33. hring með því að taka styttra þjónustuhlé í annarri umferð þjónustuhléa. Ricciardo var þá kominn fram úr báðum Williams bílunum með sömu aðferð.

Harka færðist í leikinn hjá þeim sem voru í miðri röðinni. Frá Button í áttunda sæti og aftur úr. Mikið var um snertingar og fram úr akstra.

Rosberg gerði lokaatlögu að Hamilton á síðustu hringjum keppninnar. Þegar Rosberg stytti bilið á milli þeirra svaraði Hamilton samstundist. Hamilton hélt forystunni til loka og jók forskot sitt í heimsmeistarakeppni ökumanna upp í 24 stig.

Pastor Maldonado náði í sitt fyrsta stig á tímabilinu í dag. Lotus virðist vera að ná framförum. Ekki seinna vænna þegar tvær keppnir eru eftir.

Ricciardo átti frábæran dag.Vísir/Getty
„Lewis var snjallari í dag, sparaði dekkin örlítið meira og gat því barist af meiri hörku. Það skilaði honum fyrsta sætinu að lokum. Annar ökumanna okkar mun nú pottétt verða heimsmeistari,“ sagði Niki Lauda, sérstakur ráðgjafi Mercedes liðsins.

„Það er frábært að vera efstur í keppni ökumanna. Bíllinn var frábær,“ sagði Hamilton.

„Þetta var erfiður dagur, það tók mig langan tíma að finna taktinn. Ég fann hann ekki fyrr en Lewis var farinn fram úr, þá var það of seint,“ sagði Rosberg.

„Þetta er frábær staður, hér er hægt að taka fram úr og ég náði Magnussen snemma og svo Alonso eftir endurræsinguna. Þetta var ekkert of leiðinlegt,“ sagði Ricciardo sem á ekki lengur stærfræðilegan möguleika á heimsmeistaratitlinum.

„Ekki skemmtileg keppni, það var mikið af vandamálum í afturhluta bílsins. Vonandi hentar brautinn í Brasilíu okkur betur. Það virðist vera þanngi að brautir annað hvort henti okkur eða alls ekki. Það væri betra að vera samkeppnishæfur alls staðar,“ sagði Button niðurlútur eftir keppni, ætli hann eigi bara tvær keppnir eftir á Formúlu 1 ferli sínum? McLaren á enn eftir að tilkynna ökumenn sína á næsta ári.

Maldonado náði loksins í stig í dag. Hann kann þá að keyra, einhverjir voru farnir að efast um það.Vísir/Getty
Úrslit bandaríska kappakstursins 2014:

1.Lewis Hamilton - Mercedes - 25 stig

2.Nico Rosberg - Mercedes - 18 stig

3.Daniel Ricciardo - Red Bull 15 stig

4.Felipe Massa - Williams - 12 stig

5.Valtteri Bottas - Williams - 10 stig

6.Fernando Alonso - Ferrari - 8 stig

7.Sebastian Vettel - Red Bull - 6 stig

8.Kevin Magnussen - McLaren - 4 stig

9.Jean-Eric Vergne - Toro Rosso - 2 stig

10.Pastor Maldonado - Lotus - 1 stig

11.Romain Grosjean - Lotus

12.Jenson Button - McLaren

13.Kimi Raikkonen - Ferrari

14.Esteban Gutierrez - Sauber

15.Daniil Kvyat - Toro Rosso

Sergio Perez - Force Indi - kláraði ekki

Nico Hulkenberg - Force India - kláraði ekki

Adrian Sutil - Sauber - kláraði ekki

Næsta keppni fer fram í Brasilíu um næstu helgi.


Tengdar fréttir

FIA breytir tímatökunni í Texas

Færri bílar kölluðu á breytingar á fyrirkomulagi tímatökunnar í Texas annars hefðu tveir bílar dottið út í fyrstu lotu og því að litlu að keppa. Breytingarnar eru nauðsynlegar vegna fjarveru Caterham og Marussia.

Hamilton fljótastur á æfingum í Texas

Lewis Hamilton náði hraðasta tímanum á báðum föstudagsæfingunum. Bretinn var þremur tíundu á undan Nico Rosberg á fyrri æfingunni en aðeins þrem þúsundustu á þeirri seinni.

Nico Rosberg á ráspól í Bandaríkjunum

Nico Rosberg á Mercedes náði ráspól eftir gríðar skemmtilega tímatöku í Austin, Texas. Liðsfélagi hans, Lewis Hamilton varð annar og Valtteri Bottas á Williams varð þriðji.

Marcus Ericsson til Sauber

Sænski ökuþórinn Marcus Ericsson hefur samið við Sauber liðið í Formúlu 1. Hann ók áður fyrir Caterham liðið sem nýlega lýsti yfir gjaldþroti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×