Arnór markahæstur í tapi gegn Kiel | Löwen vann nauman sigur Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. nóvember 2014 20:16 Arnór skilaði sínu í kvöld.
Rhein-Neckar Löwen og Kiel eru efst og jöfn á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta, en bæði lið unnu sína leiki í kvöld. Kiel hafði betur gegn Bergischer í Íslendingaslag, en lokatölur urðu 20-32, þýsku meisturunum í vil. Bergischer hélt í við Kiel fyrstu mínúturnar en um miðjan fyrri hálfleik skildu leiðir. Kiel leiddi með fimm mörkum í leikhléi, 11-16, og lærisveinar Alfreðs Gíslasonar juku muninn smám saman í seinni hálfleik og unnu að lokum tólf marka sigur. Marko Vujin var markahæstur í liði Kiel með tíu mörk, en sænski hornamaðurinn Niclas Ekberg kom næstur með sex mörk. Aron Pálmarsson lék ekki með Þýskalandsmeisturunum vegna meiðsla. Arnór Þór Gunnarsson var markahæstur hjá Bergischer en hann skoraði fimm mörk úr hægra horninu. Björgvin Páll Gústavsson varði einungis tvö skot í marki Bergischer. Rhein-Neckar Löwen vann nauman eins marks sigur, 35-34, á Lemgo á heimavelli sínum í Mannheim. Staðan var jöfn í hálfleik, 16-16. Uwe Gensheimer var einu sinni sem oftar markahæstur hjá Ljónunum með 11 mörk, en Kim Ekdahl du Rietz kom næstur með tíu. Alexander Petersson hafði hægt um sig í sókninni og skoraði aðeins eitt mark. Stefán Rafn Sigurmannsson komst ekki á blað. Timm Schneider var markahæstur hjá Lemgo með átta mörk. Sigurbergur Sveinsson var ekki á meðal markaskorara þegar Erlengan bar sigurorð af Wetzlar með tveggja marka mun, 22-20. Þá unnu Evrópumeistarar Flensburg öruggan níu marka sigur á Minden á útivelli, 22-31.
Handbolti Mest lesið Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Frakkland - Spánn | Sæti í úrslitaleiknum undir Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Fótbolti Bróðir Yamals slær í gegn á HM Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Sjá meira