Markaskorun Snorra kemur Ragnari ekki á óvart Tómas Þór Þórðarson skrifar 20. október 2014 10:45 Snorri Steinn skorar og skorar fyrir Sélestad. mynd/lnh.fr
Snorri Steinn Guðjónsson hefur farið hamförum með Sélestad í frönsku 1. deildinni í handbolta við upphaf tímabils, en íslenski leikstjórnandinn er markahæstur í deildinni með 53 mörk í sex leikjum.Ragnar Óskarsson, fyrrverandi samherji Snorra í landsliðinu, segir þetta ekki koma sér á óvart, en Ragnar gerðist aðstoðarþjálfari Cesson-Rennes fyrir tímabilið og hefur fylgst með Snorra fara á kostum í Frakklandi. „Hann var nálægt því að snúa aftur heim,“ segir Ragnar í viðtali við vefsíðu frönsku 1. deildarinnar. „En hann ákvað að taka eina áskorun til viðbótar og hann hefur staðið sig mjög vel. Frammistaða hans hefur skipt sköpum fyrir Sélestad á tímabilinu.“ Snorri hefur spilað fyrir stórlið á borð við Rhein-Neckar Löwen og AG Kaupmannahöfn auk þess að stýra leik íslenska landsliðsins undanfarinn áratug. Það hefur borið minna á markaskorun hans síðustu ár, en Sélestad þarf meira á þeim að halda. „Það kemur mér ekki á óvart að hann skori svona mikið. Með fullri virðingu fyrir Sélestad hefur Snorri verið að spila með betri liðum þar sem hann var meiri leiðtogi. Hjá Sélestad þarf hann meira að taka af skarið og skora. Hann er náttúrlega frábær leikmaður sem kann leikinn og er bæði mjög leikreyndur. Hann er líka frábær í hóp.“ „Við þekkjum hvorn annan mjög vel og mér finnst hann betri núna en undanfarin ár. Hann er einn af bestu leikmönnum deildarinnar og hann á góð ár framundan,“ segir Ragnar Óskarsson.
Handbolti Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Handbolti Brasilía - Marokkó | Fyrsti stórleikurinn Fótbolti Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Sjá meira