Handbolti

Aðalsteini sagt upp

Anton Ingi Leifsson skrifar
Mynd/Aðsend
Aðalsteini Eyjólfssyni hefur verið sagt upp störfum hjá þýska B-deildarliðinu Eisenach samkvæmt heimildum Morgunblaðsins.

Aðalsteinn hefur þjálfað Eisenach í fjögur og hálft ár. Tap gegn Hamm í gærkvöldi fyllti mælinn hjá forráðamönnum félagsins, en liðið er í tíunda sæti deildarinnar af tuttugu liðum eftir átta leiki.

Aðalsteinn framlengdi samning sinn í vor við Eisenach um eitt ár, en fékk stígvelið í gærkvöldi. Hannes Jón Jónsson og Bjarki Már Elísson spila með Eisenach.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×