Aðalsteinn: Enginn átti von á þessu Anton Ingi Leifsson skrifar 11. október 2014 18:16 Aðalsteinn er nú án félags. Vísir/Aðsend
Aðalsteinn Eyjólfsson segir að liðinu hafi vantað sjálfstraust þetta tímabilið eftir erfitt gengi í þýsku úrvalsdeildinni í fyrra, en Aðalsteini var sagt upp störfum hjá Eisenach í dag. „Það er búið að ganga illa og eftir að við töpuðum í gær tóku forsetinn og framkvæmdarstjórinn þessa ákvörðun. Það er lítið hægt að kvarta yfir henni," sagði Aðalsteinn í samtali við Vísi. „Það var mikil pressa á liðinu og við vorum yfirleitt að leiða leikina, en misst marga leiki niður. Ekki náð að klára leikina og glutrað þeim niður á grátlegan hátt, sérstaklega á heimavelli." Aðalsteinn segir að tímabilið í ár hafi verið afar erfitt eftir dapurt gengi í deild þeirra bestu á síðustu leiktíð. „Það vantaði bara sjálfstraust í liðið. Við vorum nátturlega að spila við ofurefli í 90% af leikjunum í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og það vantaði bara sjálfstraust í liðið." „Við vorum með lítið fjárráð. Ég og forráðamenn klúbbsins höfum þó átt gott samstarf, en við tókum vitlausar ákvarðanir til dæmis í sumum leikmannakaupum og fleira," sagði Aðalsteinn.Hannes Jón Jónsson og Bjarki Már Elísson leika með Eisenach, en hann segir að flestir hafi verið slegnir þegar þeir heyrðu tíðindin: „Ég tilkynnti þeim þetta í gær og það voru bara allir slegnir. Það átti enginn von á þessu." Hann segir að nú taki bara vinna við hjá sér að finna sér nýtt félag. „Ég fer núna bara á fund á mánudaginn og klára mín starfslok hjá félaginu. Það hefur enginn þjálfari verið eins lengi hjá Eisenach og ég síðan fyrir sameiningu og menn voru byrjaðir að halda að ég stýrði klúbbnum." „Núna fer umboðsmaður minn bara að leita, en ef ekkert gengur upp reikna ég með að koma til Íslands næsta sumar. Ég er alls ekki hættur að þjálfa," sagði Aðalsteinn að lokum í samtali við Vísi.
Handbolti Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Íslenski boltinn „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Enski boltinn Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ Fótbolti Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu Fótbolti Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Fótbolti Fleiri fréttir Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Sjá meira