Viðskipti innlent

Rannveig nýtur fulls trausts stjórnar HB Granda

Stefán Árni Pálsson skrifar
Rannveig Rist.
Rannveig Rist. visir/gva
Vegna framkominnar ákæru á hendur Rannveigu Rist telur stjórn HB Granda hf. ekki ástæðu til að gera athugasemdir við áframhaldandi stjórnarstörf hennar fyrir félagið. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá HB Granda.

Rannveig nýtur fulls trausts stjórnarinnar.  „Meginregla íslensks réttarfars er að hver maður skuli teljast saklaus þar til sekt hans sé sönnuð og það mat er í höndum dómstóla. Því telur stjórn HB Granda hf. að ekki sé tilefni til sérstakra viðbragða og ítrekar að hún beri fullt traust til Rannveigar.“

Stjórn N1 komst að sömu niðurstöðu um hæfni Margrétar Guðmundsdóttur stjórnarformanns félagsins með tilliti til útgáfu ákæru embættis sérstaks saksóknara á hendur henni.


Tengdar fréttir

Rannveig áfram í forstjórastólnum

Rannveig Rist, sem hefur verið ákærð af sérstökum saksóknara fyrir umboðssvik, verður áfram forstjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi.

Lánið til Existu án nokkurra trygginga

Lán sem SPRON veitti Existu 30. september 2008 að upphæð tveir milljarðar króna var eina lánið sem samþykkt var af stjórn SPRON á árunum 2007 og 2008. Þetta kemur fram í ákæru Sérstaks saksóknara gegn sparisjóðsstjóranum og fjórum stjórnarmönnum.

Verður áfram í stjórn N1

Stjórn N1 hf. hefur yfirfarið hæfi Margrétar Guðmundsdóttur stjórnarformanns félagsins með tilliti til útgáfu ákæru embættis sérstaks saksóknara á hendur henni.

Tveir af hinum ákærðu sitja í stjórnum skráðra félaga

Kauphöll Íslands leggur mikla áherslu á að stjórnarmenn í félögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað eigi ekki feril að baki sem geti lagt orðspor viðkomandi félags í hættu eða dregið úr trausti á markaðnum.

SPRON-liðar lýstu yfir sakleysi

Fyrrverandi bankastjóra SPRON og þremur stjórnarmönnum er gefið að sök að hafa farið út fyrir lánaheimildir með því að veita Exista tveggja milljarða króna lán árið 2008.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×