Viðskipti innlent

Lánið til Exista mjög óvenjulegt

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
SPRON var til húsa á Skólavörðustíg.
SPRON var til húsa á Skólavörðustíg.
Lánið sem stjórn SPRON veitti Exista sem veitt var árið 2008 er í ákæru sagt mjög óvenjulegt. Lánið hafi verið það eina sem samþykkt var á árunum 2007-2008 af stjórn sparisjóðsins á þessum tíma og að lánið hafi verið afar stórt miðað við fjárhag sparisjóðsins. Eru ákærðu sögð hafa misnotað aðstöðu sína hjá sparisjóðnum og stefnt fé bankans í verulega hættu, með því að fara út fyrir heimildir til lánveitinga. *

Lánið að fullu eða verulegu leyti glatað

Um er að ræða  tveggja milljarða lán sem tekið var á fundi stjórnar SPRON hinn 30.september 2008, sem tekið var til meðferðar að beiðni hlutafélagsins Exista. Lánið var framlengt fjórum sinnum og var síðasti gjalddagi þess 16.mars 2009. Það var ekki greitt til baka og í ákærunni segir að það verði að telja það sparisjóðnum að fullu eða að verulegu leyti glatað.

Guðmundur Örn Hauksson.
Ákærðu í málinu eru Guðmundur Örn Hauksson, fyrrverandi forstjóri SPRON og stjórnarmenn: Rannveig Rist, Jóhann Ásgeir Baldurs, Margrét Guðmundsdóttir og Ari Bergmann Einarsson.

Full ástæða til að fara varlega

Í ákærunni segir jafnframt að full ástæða hafi verið fyrir meðlimi stjórnarinnar að fara varlega við ákvörðun sína og og fara eftir öllum reglum vegna slíkra lánveitinga, ekki síst í ljósi þeirrar stöðu sem upp var komin á fjármálamörkuðum á þessum tíma. Því hafi hins vegar farið fjarri að ákærðu færu eftir þeim varrúðarreglum sem þeim bar skylda til í störfum sínum. Þvert á móti hafi lánið verið veitt án nokkurra trygginga og ekki farið fram mat á stöðu Existu og greiðslugetu. Í ljósi þess sé óhjákvæmilegt að líta svo á að brot ákærðu hafi verið stórfelld.

Sérstakur saksóknari höfðar málið og verður það þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur næstkomandi mánudag.


Tengdar fréttir

Rannveig áfram í forstjórastólnum

Rannveig Rist, sem hefur verið ákærð af sérstökum saksóknara fyrir umboðssvik, verður áfram forstjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi.

Verður áfram í stjórn N1

Stjórn N1 hf. hefur yfirfarið hæfi Margrétar Guðmundsdóttur stjórnarformanns félagsins með tilliti til útgáfu ákæru embættis sérstaks saksóknara á hendur henni.

Tveir af hinum ákærðu sitja í stjórnum skráðra félaga

Kauphöll Íslands leggur mikla áherslu á að stjórnarmenn í félögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað eigi ekki feril að baki sem geti lagt orðspor viðkomandi félags í hættu eða dregið úr trausti á markaðnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×