Viðskipti innlent

SPRON-liðar lýstu yfir sakleysi

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Ari Bergmann og Guðmundur Örn Hauksson ásamt verjendum sínum við þingfestingu málsins í dag.
Ari Bergmann og Guðmundur Örn Hauksson ásamt verjendum sínum við þingfestingu málsins í dag. vísir/vilhelm
Þingfesting í máli sérstaks saksóknara á hendur fyrrverandi forstjóra SPRON og fjórum stjórnarmönnum SPRON fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Guðmundur Örn Hauksson, fyrrverandi forstjóri SPRON og stjórnarmennirnir Margrét Guðmundsdóttir og Ari Bergmann Einarsson lýstu yfir sakleysi sínu en Rannveig Rist og Jóhann Ásgeir Baldurs mættu ekki við þingfestingu málsins en koma þau til með að lýsa afstöðu sinni 29. október næstkomandi.

Þeim er gefið að sök að hafa misnotað aðstöðu sína hjá sparisjóðnum og stefnt fé hans í verulega hættu með því að fara út fyrir heimildir til lánveitinga. Í ákærunni segir að brot þeirra sé stórfellt en málið snýr að tveggja milljarða lánveitingu sparisjóðsins til Exista skömmu fyrir hrun, eða 30. september 2008. Brot þeirra er jafnframt sagt óvenjulegt í ákærunni að því leiti að lánið var það eina sem samþykkt var á árunum 2007-2008.

Lánið var framlengt fjórum sinnum og var síðasti gjalddagi þess 16.mars 2009. Það var ekki greitt til baka og í ákærunni segir að það verði að telja það sparisjóðnum að fullu eða að verulegu leyti glatað.

Í ákærunni segir jafnframt að full ástæða hafi verið fyrir meðlimi stjórnarinnar að fara varlega við ákvörðun sína og og fara eftir öllum reglum vegna slíkra lánveitinga, ekki síst í ljósi þeirrar stöðu sem upp var komin á fjármálamörkuðum á þessum tíma.

Því hafi hins vegar farið fjarri að ákærðu færu eftir þeim varúðarreglum sem þeim bar skylda til í störfum sínum. Þvert á móti hafi lánið verið veitt án nokkurra trygginga og ekki farið fram mat á stöðu Existu og greiðslugetu. Í ljósi þess sé óhjákvæmilegt að líta svo á að brot ákærðu hafi verið stórfelld.


Tengdar fréttir

Rannveig áfram í forstjórastólnum

Rannveig Rist, sem hefur verið ákærð af sérstökum saksóknara fyrir umboðssvik, verður áfram forstjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi.

Verður áfram í stjórn N1

Stjórn N1 hf. hefur yfirfarið hæfi Margrétar Guðmundsdóttur stjórnarformanns félagsins með tilliti til útgáfu ákæru embættis sérstaks saksóknara á hendur henni.

Tveir af hinum ákærðu sitja í stjórnum skráðra félaga

Kauphöll Íslands leggur mikla áherslu á að stjórnarmenn í félögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað eigi ekki feril að baki sem geti lagt orðspor viðkomandi félags í hættu eða dregið úr trausti á markaðnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×