Handbolti

Lærisveinar Arons völtuðu yfir Evrópumeistarana

Aron fagnar á hliðarlínunni í dag.
Aron fagnar á hliðarlínunni í dag. vísir/daníel
Lið Arons Kristjánssonar, Kolding, gerði sér lítið fyrir og valtaði yfir Evrópumeistara Flensburg í Meistaradeildinni í dag.

Lið Arons var afar vel stemmt og tók frumkvæðið strax í upphafi. Liðið leiddi með sex marka mun í leikhléi, 19-13.

Ekki var slakað á klónni í síðari hálfleik heldur haldið áfram að keyra yfir meistarana.

Þegar upp var staðið vann Kolding ótrúlegan fjórtán marka sigur, 35-21.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×