Handbolti

Guðjón Valur með átta mörk í stórsigri

Guðjón Valur er hann gekk til liðs við Barcelona.
Guðjón Valur er hann gekk til liðs við Barcelona. Vísir/Barcelona.es
Guðjón Valur Sigurðsson hefur heldur betur komið með krafti inn í lið Barcelona en Guðjón Valur var markahæstur í 42-25 sigri liðsins á Aragón í kvöld.

Spænska deildin í handbolta er að byrja þessa dagana en Guðjón Valur hefur farið á kostum með liðinu undanfarna daga í spænska ofurbikarnum og æfingarleikjum.

Sigurinn í kvöld var aldrei í hættu en Barcelona var 20-10 yfir í hálfleik. Guðjón Valur skoraði átta mörk úr tíu skotum og var atkvæðamestur í liði Barcelona en næstur var Kiril Lazarov með sjö mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×