Viðskipti innlent

Ræða fjármagnshöftin og afleiðingar þeirra

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ásdís Kristjánsdóttir og Vilhjálmur Þorsteinsson.
Ásdís Kristjánsdóttir og Vilhjálmur Þorsteinsson. visir/valli
Félag frjálslyndra jafnaðarmanna hafa boðað til opins fundar annað kvöld í Hannesarholti við Grundarstíg til að ræða fjármagnshöftin, afleiðingar þeirra og leiðir til afléttingar en fundurinn hefst klukkan átta.

Frummælendur verða Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins, og Vilhjálmur Þorsteinsson, frumkvöðull og stjórnarmaður í FFJ.

Að loknum framsöguerindum verða umræður og spjall. Fundarstjóri verður Dagbjört Hákonardóttir lögfræðingur og varaformaður FFJ.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×