Diskódís sem er sólgin í ís Þórdís Lilja Gunnarsdóttir skrifar 24. maí 2014 10:00 MYND/SVEINBI
Það verður dúndrandi diskóstuð á Spot í kvöld þegar diskódívan Jóhanna Guðrún fer fyrir spánnýrri Diskólest og rifjar upp Hollywood- og Broadway-árin.Hvað ætlar þú að gera sérstakt um þessa helgi? Ég fer alltaf í langan göngutúr með hundana mína. Mér finnst svo endurnærandi að komast út, hreyfa mig og hreinsa hugann í leiðinni. Ég fer reyndar mikið út að ganga dagsdaglega en það er alltaf tekin extra löng ganga um helgar.Hvað ætlarðu að gera sérstakt um þessa helgi? Ég verð að spila á útgáfutónleikum Baggalúts í kvöld og skelli mér svo beint á Spot til að syngja með Diskólestinni. Það verður megastuð og við í hljómsveitinni erum rosalega spennt fyrir þessu giggi.Hvar finnst þér best að vera um helgar? Mér finnst best að vera uppi á sviði að syngja.Vakirðu lengur um helgar? Ég vaki fram eftir ef ég er að spila á balli. Annars er ég oftast sofnuð um miðnætti. Ég er A-manneskja að eðlisfari.Ertu árrisul eða sefurðu út? Mér finnst gott að vakna snemma og laga gott kaffi. Svo sest ég inn í stofu og hef það notalegt.Hver er draumamorgunverðurinn? Það eru amerískar pönnukökur með sírópi og melónum.Hvernig er dæmigert laugardagskvöld í þínu lífi? Þegar maður er starfandi tónlistarmaður er engin helgi eins. Ég er oftast að syngja einhvers staðar og verkefnin eru jafn mismunandi og þau eru mörg. Það gerir þessa vinnu mjög skemmtilega.Ertu með nammidag og hvert er uppáhaldssælgætið þitt? Ég er ekki með nammidag og reyni frekar að fá mér lítið í einu og oftar. Ég er algjör ísfíkill og borða vandræðalega oft ís. Sælgæti er mér ekki jafn mikilvægt.Hvað maularðu í sjónvarpssófanum á laugardagskvöldi? Nú, auðvitað ís!Heldurðu hvíldardaginn heilagan? Ég reyni, en það gengur misvel. Það liggja alltaf fyrir verkefni sem hafa hlaðist upp yfir vikuna og þarf að sinna og mér þykja sunnudagar góðir í að ganga frá lausum endum.Ferðu til kirkju eða hlustar á útvarpsmessuna á sunnudagsmorgnum? Nei.Hvað verður með sunnudagskaffinu og með hverjum drekkur þú það? Ég er mikill kaffisnobbari og elska að hella upp á gott kaffi. Við Davíð drekkum sunnudagskaffið saman og okkur finnst nóg að fá okkur einn sterkan cappucchino. Meðlæti er óþarfi en ef við fáum gesti skelli ég í vöfflur.Til hvers eru helgarfrí, að þínu mati? Til að gera eitthvað skemmtilegt með fjölskyldu og vinum sem ekki gefst tími til í vinnuvikunni. Einnig finnst mér nauðsynlegt að hlaða batteríin þegar maður á helgarfrí.Hvers vegna steigstu um borð í Diskólestina? Af því að diskó er langbesta tónlistin til að dansa og skemmta sér við. Við ætlum að sanna það á Spot í kvöld.Hvert er þitt uppáhaldsdiskólag? Ég held mikið upp á lagið September með Earth, Wind and Fire.Ertu diskódís að upplagi? Heldur betur. Ég hef alltaf elskað diskó. Diskótímabilið gaf af sér rosalega flotta söngvara og söngkonur, eins og Donnu Summer, Díönu Ross, Stevie Wonder og Patti Labelle, svo fátt sé upptalið.Hvert stefnir Diskólestin í sumar? Við gefum allt í botn á Spot í kvöld og sjáum svo hvað setur. Áhugasamir geta fylgst með okkur á Facebook.
Mest lesið Kynorkan alltumlykjandi hjá óléttu óperusöngkonunni Menning Heklaði á sig forsýningarkjólinn Tíska og hönnun „Án djóks besta kvöld lífs míns“ Lífið Borguðu norn fyrir gott veður á brúðkaupsdaginn Lífið Keyptu vistvænt hús í Garðabæ af meðlimi Sigur Rósar Lífið Fjallar ekki um eiturlyf í dýrðarljóma Lífið „Hann varð fyrir gríðarlega miklum árásum úr samfélaginu“ Lífið Skortur á viðtengingarhætti hjá Laufeyju sé hluti af stærri þróun Menning Kórtónleikar: Heilög naumhyggja eða heilalaust suð Gagnrýni Tjáir sig um erfiðar tökur: Engir meðleikarar og enginn leikstjóri Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Borguðu norn fyrir gott veður á brúðkaupsdaginn Fjallar ekki um eiturlyf í dýrðarljóma „Án djóks besta kvöld lífs míns“ Robert Redford er látinn Norska konungsfjölskyldan krefst breytinga á heimildarmynd Netflix Fyrst „stóru fimm“ til að hóta sniðgöngu Keyptu vistvænt hús í Garðabæ af meðlimi Sigur Rósar Fögur hæð í frönskum stíl „Hann varð fyrir gríðarlega miklum árásum úr samfélaginu“ Mægðurnar Vanda Sig og Dísa sögðu fokk við ofbeldi Salka Sól og Elísabet Jökuls mættu á frumsýningu „Komst ekki á Emmy-hátíðina en komst á bráðamóttökuna“ Staða inn á fótboltavelli sem heitir það sama og bleyjutegund Glæpasagnahöfundur nældi sér í fyrirsætu Stökkva út í sjó úr margra metra hæð og fréttamaður fékk að prófa „Áttum góða tíma og mjög ástríkt samband að mestu“ Ein sú fegursta komin á fast Drake fékk brjóstahaldarann frá Guggu í fangið Stjörnulífið: Gellurnar stóðu vaktina Lifði með fjögurra prósenta sjón án greiningar Adolescence, The Studio og Colbert komu, sáu og sigruðu Kettir með engar rófur til sýnis Bein útsending: Haustbingó Blökastsins Safnaði fyrir draumaferðinni á þremur mánuðum Krakkatían: Vestfirðir, sundkappi og söngleikur Skyrið okkar ekki lengur ostur heldur jógúrt Snýr aftur sem ritstjóri eftir tvo áratugi Fréttatía vikunnar: Þingsetning, landsleikur og klamydía Nýr forseti ÍSÍ kallar eftir sameiginlegu átaki í lýðheilsu Ásdís Rán og Herbert Guðmunds glæsileg á frumsýningu Sjá meira