Deilir afmælisdegi með afa sínum heitnum Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 24. maí 2014 08:30 Katrín lætur sér ekki leiðast í lífinu. Mynd/úr einkasafni „
Það er mikill heiður fyrir mig að fá að tala fyrir hönd allra útskriftarnema á þessum stóra degi,“ segir Katrín Ósk Ásgeirsdóttir, ræðumaður Íslands árið 2014 og fráfarandi oddviti nemendafélags Flensborgarskólans. Hún útskrifast úr Flensborgarskólanum í dag og flytur ræðu útskriftarnema við athöfnina en það voru samnemendur hennar sem útskrifast í dag sem völdu hana hæfasta í verkið. „Þetta er fyrst og fremst hátíðleg ræða að lokinni skólagöngu í Flensborg. Ræða til að þakka þeim sem áttu sinn þátt í því að leyfa okkur að standa þarna og útskrifast úr framhaldsskóla; skólastjórn og kennurum sem gerðu okkur kleift að vera þarna. Án þeirra stæðum við ekki þarna í dag. Ég ætla líka að horfa fram á við í ræðunni og tala um hvaða tækifæri taka við eftir útskrift,“ segir Katrín. Katrín hefur verið meðlimur í ræðuliði Flensborgarskólans síðan hún var nýnemi árið 2010. Í ár sat hún einnig í stjórn Morfís, mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskóla á Íslandi. Ræðulið Flensborgarskólans sigraði í Morfís-keppninni í ár, í fyrsta sinn í sögu skólans, og var Katrín valin ræðumaður Íslands. Hún er því öllu vön þegar kemur að ræðumennsku. „Ég er ekkert stressuð fyrir útskriftarræðunni en auðvitað vil ég gera vel og mitt besta í þessari seinustu ræðu á sviði í Flensborg. Ég hef haldið þær ófáar þar og ég hlakka mikið til.“ Katrín útskrifast ekki aðeins á morgun heldur fagnar einnig tvítugsafmæli sínu. Hún deilir afmælisdeginum með föðurafa sínum sem hefði orðið sjötugur hefði hann lifað. „Hann fékk mig í fimmtugsafmælisgjöf en hann lést árið 2004. Hann hefur alltaf verið mér ofarlega í huga á afmælisdeginum mínum og ég hef alltaf fagnað deginum með honum. Það er mjög gaman að eiga svona sérstakan dag með einhverjum þótt hann sé ekki til staðar,“ segir Katrín. Dagurinn er pakkaður hjá þessari atorkumiklu stúlku. „Athöfnin í skólanum hefst klukkan 11 og lýkur um hádegi. Þá ætla ég að halda útskriftarveislu heima með fjölskyldu minni og nánustu vinum. Svo ætlum við nokkrir útskriftarnemar að halda útskriftarpartí í Reykjavík. Það er nóg að gera og þetta er mjög spennandi dagur.“ Þá er Katrín einnig frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði. Hún skipar níunda sæti á listanum og því möguleiki á að hún verði varabæjarfulltrúi á næsta kjörtímabili. „Mér var boðið að sitja í níunda sæti á listanum og mér fannst það kjörið tækifæri fyrir mig til að komast inn í mál Hafnarfjarðarbæjar aðeins betur. Ég vil nýta þetta tækifæri og vera virk í félagsstarfinu sem á sér stað í flokknum. Mér finnst mikilvægt fyrir ungt fólk að það sitji einhver ungur á lista og mér finnst mjög gaman að vera fulltrúi unga fólksins,“ segir Katrín en það liggur beinast við að spyrja hvernig henni hafi tekist að útskrifast í ljósi þess öfluga félagsstarfs sem hún er hluti af. „Ótrúlegt en satt náði ég öllu og er að fara að útskrifast. Ég þurfti að leggja mikið á mig á lokasprettinum og það var mikið af verkefnum og lærdómi sem ég þurfti að vinna upp til að ég gæti útskrifast. En um leið og ég sá von spýtti ég í lófana. Þetta hófst á endanum og er ótrúlega gaman. Ég þakka líka foreldrum mínum ótrúlega þolinmæði og stuðning á meðan á þessu stóð. Þetta hefði ég aldrei getað gert án þeirra og er ég þeim óendanlega þakklát.“ En hvað tekur við hjá Katrínu? „Eftir útskrift ætla ég út á vinnumarkaðinn í eitt ár. Mig langar einnig að ferðast aðeins í byrjun næsta árs með vinkonu minni. Mig hefur lengi dreymt um að fara í lögfræði við Háskóla Íslands og ég stefni þangað haustið 2015. Ég hef einnig mikinn áhuga á að starfa í fjölmiðlum þannig að við sjáum hvað gerist í framtíðinni.“
Mest lesið Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Lífið Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Lífið Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Lífið Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Lífið Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Lífið Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Lífið Sassy fagnar 5 ára afmæli og stórum kaflaskiptum Lífið samstarf Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Lífið Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Menning Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Menning Fleiri fréttir Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Sjá meira