Innlent

Gömul sprengjuflugvél lenti í Keflavík

Atli Ísleifsson skrifar
Almenningi gefst færi á að skoða Avro Lancaster-vélina úr seinni heimstyrjöldinni á Reykjavíkurflugvelli milli klukkan 11 og 13 á morgun, fimmtudag.
Almenningi gefst færi á að skoða Avro Lancaster-vélina úr seinni heimstyrjöldinni á Reykjavíkurflugvelli milli klukkan 11 og 13 á morgun, fimmtudag. Vísir/AFP
Avro Lancaster Mk X sprengjuflugvél úr seinni heimstyrjöldinni lenti á Keflavíkurflugvelli upp úr klukkan 21 í kvöld. Vélin er á leið yfir Atlantshafið á leið til Bretlands til að heiðra minningu þeirra fjölmörgu áhafnarliða bresku sprengjuflugsveitanna sem létu lífið í síðari heimsstyrjöldinni.

Vélin er önnur af tveimur slíkum vélum sem eru í flughæfu ástandi í dag. Almenningi gefst færi á að skoða vélina á Reykjavíkurflugvelli við Icelandair Hotel Reykjavik Natura milli klukkan 11 og 13 á morgun, fimmtudag. Á Facebook-síðu Flugmálafélagsins segir að áætluð lending í Reykjavík sé klukkan 9:15.

Í tilkynningu frá Flugmálafélaginu segir að alls hafi 7.377 flugvélar af þessari tegund verið smíðaðar í nokkrum gerðum á stríðsárunum, meðal annars í Kanada. Af þessum 7.377 flugvélum sem voru smíðaðar voru yfir 3.200 skotnar niður af loftvarnarsveitum þýska þriðja ríkisins og með þeim fórst gríðarlegur fjöldi manna. 55.573 af um 120 þúsund flugáhafnarmeðlimum í sprengjusveitum breska flughersins fórust til að mynda í stríðinu í átökum við þriðja ríkið.

„Eftir að stríðinu lauk var flugvélum þessarar gerðar mjög fljótlega lagt og þær brotnar upp í brotajárn.  Kanadíski flugherinn ákvað hins vegar að nota nokkurn fjölda þeirra flugvéla sem smíðaðar voru í Kanada á stríðsárunum sem leitar og björgunarflugvélar yfir úthöfunum (Maritime Search and Rescue).  Flugvélin sem kemur hingað til lands er einmitt ein af þeim flugvélum en hún hafði skráningarmerið FM213 hjá kanadíska flughernum og var tekin úr þjónustu hersins í nóvember 1963.  Á ferli sínum hjá flughernum kom þessi flugvél nokkrum sinnum til Keflavíkur og er meðal annars til mynd af henni á Keflavíkurflugvelli árið 1958 þegar hún var notuð sem fylgdarflugvél með hópi  kanadískra orrustuflugvéla sem verið var að ferja yfir hafið.

Ferð Lancaster flugvélarinnar yfir Atlantshafið til Bretlands er farin til að heiðra minningu þeirra fjölmörgu áhafnarliða bresku sprengjuflugsveitanna sem létu lífið í síðari heimsstyrjöldinni, og verður öllum eftirlifandi meðlimum sprengjuflugsveitanna boðið á sérstakt hóf í tilefni komu vélarinnar til Bretlands á föstudaginn.  Þess má geta að flugvélinn er máluð í litum flugvélar úr kanadísku 419 (Moose) flugsveitinni, en það var á flugvél í þessum litum sem P/O Andrew Mynarski vann æðsta heiðursmerki bresku krúnunnar fyrir hugrekki – Victoria Cross – þann 13. júní 1944 þegar hann reyndi að bjarga félaga sínum úr brennandi flaki flugvélarinnar eftir árás þýskrar næturorrustuflugvélar.  Hjá rekstraraðila flugvélarinnar, Canadian Warplane Heritage Museum gengur flugvélin undir nafninu Mynarski Lancaster honum til heiðurs.

Þessi Lancaster flugvél mun verða í Bretlandi í um það bil sex vikur og mun þar taka þátt í flugsýningum með annarri Lancasterflugvél frá RAF Battle of Britain Memorial Flight en þessar tvær eru einu Lancaster flugvélarnar sem eru flughæfar í heiminum í dag.  Ferð flugvélarinnar yfir Atlantshafið hefur vakið gríðarlega athygli hjá flugáhugamönnum og er nú svo komið að uppselt er á sumar af þeim flugsýningum sem Lancaster flugvélarnar sýna saman,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×