Erlent

Harmleikurinn í Úkraínu

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/ap
Flugvélin var af gerðinni Boeing 777 á leið frá Amsterdam í Hollandi til Kuala Lumpur í Malasíu þegar hún hvarf af ratsjám flugumferðarstjórnar í Úkraínu klukkan 14.15 að staðartíma í gær þann 17. júlí. Vélin var skotin niður með þeim afleiðingum að 298 týndu lífi. Talið er nær fullvíst að flugvélinni hafi verið grandað með flugskeyti sem skotið var frá jörðu niðri, flugskeyti af gerðinni BUK. BUK-skeytin eru framleidd í Rússlandi og Úkraínu.

Flugvélin var í um tíu kílómetra hæð þegar hún var skotin niður. Hún hrapaði niður til jarðar um fimmtíu kílómetrum frá landamærum Rússlands og Úkraínu, í Donetsk héraði, því svæði sem uppreisnarmenn hliðhollir Rússum ráða yfir. Talið er að vélin hafi brotnað til helminga áður en hún lenti á jörðu niðri og að sögn sjónarvotta rigndi braki og líkum yfir íbúa nálægt bænum Hrabove. Lík og líkamshlutar farþeganna fundust á víð og dreif, allt að fimmtán kílómetrum frá flakinu sjálfu.

Breitt yfir lík skammt frá flakinu en lík og líkamshlutar fundust á víð og dreif ferkílómetrum frá flakinu sjálfu.vísir/ap
298 látnir af tíu þjóðernum 

298 átta manns létu lífi þegar vélin var skotin niður, þar af áttatíu börn og þrjú ungabörn. Farþegar vélarinnar voru af tíu þjóðernum, bróðurpartur þeirra Hollendingar eða 189. 44 voru frá Malasíu, 27 frá Ástralíu og 12 frá Indónesíu. Þá voru 9 Bretar í fluginu, 4 frá Þýskalandi, 4 frá Belgíu, 3 frá Filippseyjum, 1 frá Nýja-Sjálandi og 1 frá Kanada. Enn á eftir að staðfesta þjóðerni tuttugu þeirra sem voru um borð. 

Hljóðupptökur sagðar sanna að vélinni hafi verið grandað 

Átökin í austurhluta Úkraínu hafa verið mikil undanfarna mánuði og hafa uppreisnarmenn skotið niður að minnsta kosti tvær flugvélar stjórnarhersins síðustu daga.

Hljóðupptökur, sem leyniþjónustan í Úkraínu hefur undir höndum og hefur birt, eru sagðar sanna að aðskilnaðarsinnar hliðhollir Rússum hafi skotið vélina niður. Leyniþjónustan hefur birt þrjár hljóðupptökur þess efnis. 

Þar segist meðal annars Igor Bezler, einn af yfirmönnum herliðs aðskilnaðarsinna, hafa skotið niður flugvél. Hann sé á leið á staðinn að mynda flakið. 

„Flugvélin sundraðist í miðju flugi nálægt Petropavlosk. Þeir fundu lík. Óbreyttan borgara,“ segir Igor Bezler í samtalinu. 

Í öðru símtali eru tveir aðskilnaðarsinnar sagðir ræða saman og annar þeirra mun vera innan um brak úr vélinni. Þeir segja að aðskilnaðarsinnar hafi skotið vélina niður. 

Í þriðju upptökunni eru leiðtogi kósakka og einn af foringjum aðskilnaðarsinna sagðir velta því fyrir sér hvers vegna farþegaþotur fljúgi yfir Austur-Úkraínu, fólk eigi að vita að þar geysi stríð.





Segir Rússa bera ábyrgð á verknaðinum - Rússar firra sig ábyrgð

Arseniy Yatseniuk forsætisráðherra Úkraínu fullyrti á blaðamannafundi í morgun að rússneskir hryðjuverkamenn bæru ábyrgð á verknaðinum.

Yatseniuk hvatti ríkisstjórnir allra þeirra landa sem málið snerti til að vinna með Úkraínumönnum í því að koma þeim drullusokkum sem sem frömdu þennan glæp fyrir dóm. Þetta væri glæpur geng makininu og með honum hefði verið farið yfir öll strik, eins og hann orðaði það.

Rússar vísa hins vegar allri ábyrgð á hendur Úkraínumönnum sem hefðu með nýjustu árásum sínum í austurhluta landsins æst upp átök á svæðinu.

Uppreisnarmenn í austurhluta Úkraínu og stjórnarher landsins hafa heitið vopnahléi á svæðinu til að tryggja að alþjóðlegt rannsóknarteymi komist að flakinu og þá hefur Malaysian lofað að koma aðstandendum þeirra sem fórust á staðinn.

Bandaríkjamenn gagnrýna rússnesk stjórnvöld

Bandarísk stjórnvöld telja allar líkur á því að aðskilnaðarsinnar í austurhluta Úkraínu hafi skotið niður farþegavél Malaysian Airlines í gær. Þetta kom fram í máli Samönthu Power sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum á fundi öryggisráðsins í dag. Hún gagnrýndi rússnesk stjórnvöld harðlega og sagði að ábyrgð þeirra í málinu væri mikil.

Bandaríkjamenn telja vélin hafi verið skotin niður með öflugum loftvarnareldflaugum sem Rússar hafi látið aðskilnaðarsinnum í té. Aðskilnaðarsinnar í austurhluta Úkraínu hafa fallist á að veita alþjóðlegu rannsóknarteymi aðgang að svæðinu þar sem vélin hrapaði til jarðar. Bandaríkjamenn og Hollendingar leggja áherslu á að að rannsókn hefjist sem fyrst áður en sönnunargögnum verður eytt.

Ódýrt og hagkvæmt að fljúga yfir svæðið

Sérfræðingar hafa spurt sig þeirrar spurningar hvers vegna farþegaþotum er leyft að fljúga yfir stríðshrjáð svæði, í ljósi þess að búið er að skjóta nokkrar flugvélar þar að undanförnu. Búið var að vara flugfélög við að fljúga yfir svæðið en flest hunsuðu viðvaranirnar. Töldu þau litlar líkur á að nokkur hætta stafaði af því að fljúga í yfir þrjátíu þúsund feta hæð, þar sem fæst flugskeyti drífa svo hátt.

Einnig eru vísbendingar um að þessar viðvaranir hafi verið hunsaðar í ljósi þess að leiðin sé sú ódýrasta og hagkvæmasta sem völ er á. 

Lofthelgi yfir austurhluta Úkraínu hefur verið lokað og allri flugumferð beint frá svæðinu. Þeim flugvélum, sem höfðu áður gefið upp áætlanir um að fljúga í gegnum lofthelgi Úkraínu og höfðu þegar tekið á loft eftir lokunina, var beint frá svæðinu af flugumferðarstjórum á jörðu niðri. 

Talið er að vélin hafi sundrast áður en hún skall á jörðu.vísir/ap
Sönnunargögnum má ekki spilla 

Sextíu og tveggja manna hamfarateymi er á leið til Kænugarðs og munu flugmálayfirvöld í Kuala Lumpur senda hóp sérfræðinga til að meta aðstæður. Þá verður neyðarfundur haldinn í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í dag. Utanríkisráðherra Breta, Philip Hammond, krafðist þess að rannsókn á atburðinum yrði unnin af fulltrúum Sameinuðu þjóðanna og að flak vélarinnar yrði látið í friði svo sönnunargögnum yrði ekki spillt. 

Talið er að báðir flugritar vélarinnar séu fundnir og að þeir séu í höndum rússneskra uppreisnarmanna. 

189 Hollendingar létust og ríkir þjóðarsorg þar í landi. Forsætisráðherra Hollands segir þetta verstu martröð sem hugsast gæti hafa orðið að veruleika í gær. Flaggað var í hálfa stöng við allar opinberar byggingar þarlendis.vísir/afp
Þjóðarleiðtogar lýsa yfir sorg

Fjölmargir þjóðarleiðtogar hafa vottað samúð sína vegna malasísku flugvélarinnar.

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hringdi eftir slysið í gær í forsætisráðherra Malasíu og forseta Úkraínu til að ræða árásina. Í sjónvarpsávarpi í gær hét hann því að Bandaríkjamenn myndu gera það sem í þeirra valdi stæði til að varpa ljósi á hvað gerðist og sagðist Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, sorgmæddur yfir hrapi vélarinnar. Fjölmargir aðrir hafa lýst yfir sorg sinni.

Þjóðarsorg ríkir í Hollandi og er flaggað í hálfa stöng á öllum opinberum byggingum í dag. Mark Rutte forsætisráðherra Hollands segir verstu martröð sem hugsast gæti hafa orðið að veruleika í gær. Hollendingar hefðu nú orðið fyrir mestu hörmungum í flugi í sögu landsins. Hollenska þjóðin væri í áfalli. Hollensk stjórnvöld krefðust nákvæmrar rannsóknar á hrapi flugvélarinnar og ef í ljós kæmi að um vísvitandi hryðjuverk væri að ræða yrði að draga þá til ábyrgðar sem staðið hefðu að verknaðinum.

Það eru ekki einungis þjóðarleiðtogar sem hafa lýst yfir sorg, en heimurinn allur stendur á öndinni vegna málsins. Hægt er að sjá nokkrar færslur á Twitter hér að neðan.

Ýmsir munir farþeganna eru víðsvegar í kringum flakið.vísir/ap
Þessi börn, Otis, Evie og Mo eru á meðal þeirra sem létust.
Malasya Airlines sagði frá því fljótlega eftir að sambandið tapaðist við vélina á Twitter-síðu sinni: Hishamuddin Hussein, varnarmálaráðherra Malasíu, sagði á Twitter-síðu sinni að ekki væri staðfest að vélin hefði verið skotin niður. Malasíski herinn sé að athuga málið nánar. Fólk skilur eftir blóm og kerti fyrir utan Hollenska sendiráðið í Kænugarði. Í ljós hefur komið að 189 þeirra sem fórust voru Hollendingar. Mark Rutte, forsætisráðherra Hollands, segir harmleikinn vera 'svartan dag' í sögu Hollands. 'Allt landið syrgir. Þessi fallegi sumardagur endaði á myrkasta mögulega hátt.'
Bandaríkjamenn eru handvissir um að vélin hafi verið skotin niður. 'Þetta var ekki slys. Hún var skotin niður,' segir Joe Biden varaforseti. Barack Obama forseti hringdi í Petro Poroshenko Úkraínuforseta og tjáði honum að þeir ætli að hjálpa þeim að komast til botns í málinu. Ekki megi hrófla of mikið við brakinu þar til alþjóðlegt lið rannsakenda sé komið á staðinn.
Vladimir Pútín Rússlandsforseti segir Úkraínumenn bera ábyrgð á þessum harmleik. Flugvélin fór niður yfir þeirra landi og það hefði ekki gerst ef stjórnvöld í Kænugarði hefðu ekki aukið hernað á móti aðskilnaðarsinnum í austurhluta landsins.
Hér fyrir neðan eru skilaboð frá Flightradar 24, sem fylgist með allri flugvélaumferð. Á myndinni sést hvar vélin var stödd þegar hún hrapaði. Hér fyrir neðan má sjá myndband af YouTube, sem sýnir reykinn frá slysstað.
Hér fyrir neðan má sjá myndir sem fréttamenn og aðrir á slysstað hafa sent frá sér. Við vörum viðkvæma við þeim.

Tengdar fréttir

Loka lofthelgi austur Úkraínu

Evrópska flugumferðarstofnunin Eurocontrol segir að yfirvöld í Kænugarði hafi lokað lofthelginni yfir austurhluta landsins.

Farþegaþota með 295 farþegum innanborðs hrapar í Úkraínu

Boeing-vél malasíska flugfélagsins Malaysian Airlines á leið frá Amsterdam til Kuala Lumpur var skotin niður á landamærum Úkraínu og Rússlands, samkvæmt heimildum Interfax. 295 farþegar voru um borð og eru allir taldir af.

Mesta hörmung í flugsögu Hollands

Forsætisráðherra Úkraínu fullyrðir að rússneskir hryðjuverkamenn hafi skotið farþegaþotu Malaysina flugfélagsins niður. Forsætisráðherra Hollands krefst ítarlegra alþjóðlegrar rannsóknar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×