Enski boltinn

Flensa herjar á leikmannahóp Man. Utd

Rooney er tæpur fyrir leik helgarinnar.
Rooney er tæpur fyrir leik helgarinnar. vísir/getty
Það er ekkert sérstaklega gott ástand á liði Man. Utd fyrir helgina en leikmenn hafa verið að glíma við veikindi og meiðsli.

Wayne Rooney er mjög tæpur fyrir leikinn gegn Sunderland þar sem hann er meiddur í nára og er veikur.

"Nokkrir strákanna eru með flensu. Þar á meðal Wayne og Lindegaard. Svo er nárinn að stríða Wayne líka og það þarf að hugsa um heilsu hans. Hann vill að sjálfsögðu spila eins og venjulega en við sjáum hvað setur," sagði Ryan Giggs, stjóri Man. Utd.

United skellti Norwich 4-0 í fyrsta leik undir stjórn Giggs. Margir vilja sjá hann taka við liðinu til frambúðar.

"Það hefur ekkert breyst. Ég verð bara stjóri út leiktíðina. Við ræðum svo framhaldið hjá mér í sumar."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×