Clippers fór létt með OKC á útivelli | Vandræði Indiana halda áfram Tómas Þór Þórðarson skrifar 6. maí 2014 09:08
Oklahoma City Thunder, sem hafnaði í öðru sæti vesturdeildar NBA, steinlá fyrir LA Clippers, 122-105, í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum vestursins í nótt. Clippers hafnaði í þriðja sæti vesturdeildarinnar, nokkrum sigrum á eftir OKC. Leikurinn var í raun aldrei spennandi í nótt en leikstjórnandinn ChrisPaul, sem fékk sinn skerf af gagnrýni fyrir frammistöðuna í einvíginu gegn Golden State, fór hamförum og skoraði 32 stig en hann skoraði átta þriggja stiga körfur úr níu skotum. Sjá má brot af skotum Chris Pauls í spilaranum hér að ofan. Hjá Oklahoma City var RussellWestbrook með 29 stig en Clippers hélt KevinDurant niðri. Besti leikmaður deildarinnar skoraði 25 stig og tók 4 fráköst. Blake Griffin bætti við 23 stigum fyrir Clippers. Tröllatroðsla Blake Griffins: Topplið austurdeildarinnar, Indiana Pacers, sem rétt marði Atlanta Hawks í átta liða úrslitum, heldur áfram að spila undir getu en liðið tapaði fyrsta leiknum á heimavelli gegn Washington Wizards í nótt, 102-96. Mikið og flott liðsframlag skilaði gestunum sigrinum en allir byrjunarliðsmennirnir skoruðu yfir tíu stig. BradleyBeal var stigahæstur með 25 stig en miðherjinn MarcinGortat var einnig mjög öflugur með 12 stig og 15 fráköst.George Hill og Paul George skoruðu báðir 18 stig fyrir Indiana miðherjinn RoyHibbert heldur áfram að spila eins og hann kunni ekki körfubolta. Hann spilaði 18 mínútur í nótt án þess að skora stig eða taka frákast.
NBA Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Fleiri fréttir Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Sjá meira