Ert þú næsti Billy Elliott? 25. apríl 2014 12:30
Borgarleikhúsið leitar að dreng á aldrinum 9-11 ára til að leika Billy Elliot. „Hugsanlega veit hinn íslenski Billy ekki að hann er stjarnan sem leitað er að. Hefur þú séð strák klifra listilega í ljósastaur? Eða stökkva stórkostlega? Er einhver sem þú þekkir sem hefur aldrei leikið, dansað og sungið en hefur vissulega hæfileika til þess? Það getur verið að hinn íslenski Billy viti ekki að hann er hinn íslenski Billy.Sá sem við leitum að þarf ekki að hafa reynslu í dansi, leik og söng. Við ætlum að kenna honum. Allir drengir á aldrinum 9 -11 ára geta sótt um að verða Billy Elliot,“ segir í fréttatilkynningu frá Borgarleikhúsinu. Prufur munu fara fram í Borgarleikhúsinu laugardaginn 10.maí kl 10. Sagan - Söngleikurinn Billy Elliot gerist í hörðum heimi þar sem lítið pláss er fyrir drauma barnanna. Sagan gerist í kolanámubæ í Bretlandi á stjórnunartíma Margrétar Thatcher. Þar búa aðallega námaverkamenn og flestra ungra drengja í þorpinu bíður það hlutverk að vinna í námunum eins og feður þeirra. Það sama á við um Billy, faðir hans og afi voru námaverkamenn og sömuleiðis bróðir hans, Tony. Þegar verkið hefst standa námaverkamennirnir í verkfalli en fjölskyldu Billy tekst þó að skrapa saman peningum svo Billy geti farið í hnefaleika. En á sama stað er verið að kenna og æfa dans og tónlistin úr danstímunum heillar hann. Billy fer að hreyfa sig í takt við tónlistina og uppgötvar sér til furðu að ekki einasta hefur hann gaman að því heldur er eins og hann sé fæddur til þess að dansa. Hann á sér draum sem samræmist ekki hugmyndum fullorðna fólksins um hvað við þurfum að gera til að lifa af. Smám saman fara heimar barnanna og fullorðna fólksins þó að skarast. Billy Elliot er þroskasaga unga fólksins og hinna fullorðnu. Mögnuð og falleg saga um fjölskylduna og það sem skiptir máli í lífinu.
Mest lesið Stebbi Jak hættur í Dimmu: „Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugðist á öllum stigum málsins“ Tónlist Sex þúsund miðar seldust upp á innan við mínútu Tónlist Svala minnist pabba síns Lífið Leikarinn Michael Patrick látinn eftir baráttu við MND Bíó og sjónvarp Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Lífið Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Lífið Tekur við af stjúpdótturinni Lífið Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Lífið Það er komið gó hjá Bó Lífið Barnsleg gleði, kynþokki og óhugnaður Tónlist Fleiri fréttir Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af stjúpdótturinni Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina Sjá meira
Stebbi Jak hættur í Dimmu: „Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugðist á öllum stigum málsins“ Tónlist
Stebbi Jak hættur í Dimmu: „Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugðist á öllum stigum málsins“ Tónlist