NBA: Clippers-liðið lifir enn í voninni um annað sætið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. apríl 2014 08:30 Chris Paul var með 21 stig og 10 stoðsendingar í leiknum í nótt. Vísir/Getty
Aðeins tveir leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt en í kvöld og nótt fara síðan fram síðustu leikirnir áður en úrslitakeppnin hefst um næstu helgi.Blake Griffin var með 24 stig í nótt þegar lið hans Los Angeles Clippers vann 117-105 sigur á Denver Nuggets en þetta var 57. sigur liðsins á tímabilinu sem er félagsmet. Chris Paul var með 21 stig og 10 stoðsendingar í leiknum og J.J. Redick skoraði 18 stig. Clippers-menn eiga enn von um að ná öðru sætinu í Vestrinum af Oklahoma City Thunder en til að svo fari þarf Clippers-liðið að vinna Portland í nótt á sama tíma og OKC tapaði fyrir Detroit Pistons. Kenneth Faried skoraði 21 stig fyrir Denver og Aaron Brooks var með 19 stig. Rússneski miðherjinn Timofey Mozgov var með 18 stig og 11 fráköst.Nýliðinn Tim Hardaway Jr. skoraði 16 stig fyrir New York Knicks í 109-98 sigri á nágrönnum sínum í Brooklyn Nets og vann Knicks-liðið því innbyrðisviðureignir liðanna á þessu tímabili. New York vann þrátt fyrir að leik án aðalstjörnu sinnar Carmelo Anthony sem er meiddur á öxl. Amare Stoudemire og J.R. Smith skoruðu báðir 14 stig fyrir New York sem vann sinn þriðja leik í röð en rétt missir engu að síður af úrslitakeppninni í ár. Marcus Thornton skoraði 24 stig fyrir Brooklyn Nets. Tapið þýðir að Brooklyn Nets getur dottið niður í sjötta sæti í úrslitakeppni Austurdeildarinnar ef Nets-liðið tapar á móti Cleveland í nótt á sama tíma og Washington vinnur Boston.Úrslit í öllum leikjum NBA-deildarinnar í nótt: Brooklyn Nets - New York Knicks 98-109 Los Angeles Clippers - Denver Nuggets 117-105Staðan í NBA-deildinni.
NBA Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Fleiri fréttir Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Sjá meira