Lífið

Leika knattspyrnu fyrir gott málefni

Ritstjórn Lífsins skrifar
Bjarki Már Sigvaldason glimir við krabbamein og er styrktarleikurinn fyrir hann og fjölskyldu hans.
Bjarki Már Sigvaldason glimir við krabbamein og er styrktarleikurinn fyrir hann og fjölskyldu hans.
Á morgun blása Kópavogsliðin HK og Breiðablik til styrktarleiks í knattspyrnu sín á milli.

Leikurinn fer fram í Kórnum á morgun og rennur allur ágóði leiksins til fjölskyldu Bjarka Más Sigvaldasonar sem hefur undanfarin ár barist af krafti við krabbamein.

Bjarki Már er uppalinn Kópavogsbúi og lék upp alla flokka í HK við góðan orðstýr. Apstandendur leiksins hvetja alla sem vettlingi geta valdið að mæta á svæðið og leggja fjölskyldunni lið.

Bjarki Már greindist með ristilkrabbamein í árslok 2012, þá 25 ára og síðar meinvörp í lungum og er hann á lokastigi krabbameins. Frá byrjun síðasta árs hefur beinn kostnaður hans vegna sjúkdómsins verið um átta hundruð þúsund krónur og er það fyrir utan óbeinan kostnað við til dæmis ferðir og breytt mataræði.

„Þar við bætist svo auðvitað tekjumissir hjá mér og maka mínum,“ sagði Bjarki í fréttum Stöðvar 2 í byrjun mars. 

Í hálfleik skemmtir dúettinn SamSam-systur, sem þær Hólmfríður og Greta Mjöll Samúelsdætur skipa, áhorfendum og veitingasala verður fyrir leik og á meðan leik stendur.

Heiðursgestir á leiknum verða bæjarstjóri Kópavogs, formenn HK og Breiðabliks sem og  Bjarki Már sjálfur og Ástrós unnusta hans.

HK og Breiðablik vilja leggja sitt á vogaskálarnar til að aðstoða þessa fjölskylduna.

Frjálst framlag er á leikinn, en þeir sem komast ekki geta styrkt fjölskylduna með því að leggja inná reikning 536-14-400171 kt. 630981-0269



Leikurinn hefst annað kvöld klukkan 19 og fer fram í Kórnum. 


Tengdar fréttir

Hræðileg tilfinning að hafa ekki efni á lyfjunum

"Það er mikið áfall að greinast með krabbamein og að þurfa að takast á við fjárhagsvandræði í ofanálag er mjög erfitt,“ segir 26 ára maður sem er á lokastigi krabbameins. "Hræðileg tilfinning að hafa ekki einu sinni efni á lyfjunum,“ segir kærasta hans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.