Vilt þú vinna miða á uppistand Jims Gaffigan? 27. mars 2014 12:00 Jim Gaffigan Vísir/Getty
Lífið á Vísi ætlar að gefa fimm heppnum lesendum miða á bandaríska uppistandarann Jim Gaffigan í Háskólabíói þann fjórða apríl næstkomandi. Til þess að vinna miða verða lesendur Vísis að láta sér líka við Facebook-síðu Lífsins á Vísi. Fimm heppnir lesendur verði svo dregnir úr potti og boðið á uppistandið, ásamt gesti. Bandaríski uppistandarinn Jim Gaffigan hefur vakið mikla eftirtekt síðastliðin ár; er orðinn gríðarlega vinsæll í heimalandi sínu og vel þekktur um allan heim. Hann er þekktastur fyrir að gera óspart grín að löndum sínum og þeirra venjum. Hvort sem það varðar hamborgaraát á McDonalds, beikonvæðingu þjóðarinnar eða trúmál, þá lætur Gaffigan allt flakka. Heimstúrarnir hans, Mr. Universe árið 2012 og White Bread Tour árið 2013 hlutu mikla aðsókn og er sýningin á íslandi hluti af nýjum Evróputúr. Gaffigan er þekktur úr kvikmyndum á borð við Three Kings, Igby Goes Down og Super Troopers auk þess að vera tíður gestur hjá mönnum á borð við Conan O'Brien og Jon Stewart. Gaffigan hefur verið líkt við Jerry Seinfeld og DaneCook en þykir hafa einstakan stíl. Jim gaf nýverið út bókina Dad is Fat, eða Pabbi er feitur. Hún fjallar um hann sjálfan og ævi hans, en hann er einn af sex systkynum, er giftur og á sjálfur fimm börn. Um bókina sína segir hann sjálfur; „Ég er ekki viss um hvort hún sé ævisaga, játning, afsökunarbeiðni eða hróp á hjálp, en konunni minni og vinkonum hennar finnst hún skemmtileg.“ Koma Gaffigan til landsins er mikill fengur fyrir hláturþyrsta Íslendinga því hann er bókaður langt fram í tíman í heimalandi sínu og víðar. Uppistandarinn, leikarinn og söngvarinn Tom Shillue ferðast með Jim á Evróputúrnum og mun hita upp fyrir hann. Tom hefur komið víða við á löngum ferli og hefur til dæmis verið fastagestur í sjónvarpsþáttum Jimmy Fallon þar sem hann leikur í ýmsum atriðum og grínsketsum.
Mest lesið „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Bíó og sjónvarp Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Lífið Fleiri fréttir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Sjá meira