Erlent

Tilkynntu ekki um flugvél á ratsjá taílenska hersins

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Talsmaðurinn sagði vélina aldrei hafa flogið inn í taílenska lofthelgi og að fyrirspurn malasískra yfirvalda hafi verið ónákvæm.
Talsmaðurinn sagði vélina aldrei hafa flogið inn í taílenska lofthelgi og að fyrirspurn malasískra yfirvalda hafi verið ónákvæm. vísir/afp
Ókunn flugvél birtist á ratsjá taílenska hersins örfáum mínútum eftir að farþegaþota Malaysia Airlines sem nú er saknað missti samband við flugturn þann 8. mars. Herinn veitti malasískum yfirvöldum ekki upplýsingar um atvikið fyrr en nú vegna þess að ekki var beðið sérstaklega um það.

AP greinir frá þessu og hefur eftir talsmanni taílenska flughersins að vélin hafi verið á flugi yfir Malaccasundi. Þessar nýju upplýsingar eru sagðar hjálpa lítið við leitina að vélinni en vekja spurningar um samvinnu þjóða þegar mikið liggur við.

Aðspurður hvers vegna upplýsingarnar bærust svona seint sagði talsmaðurinn að enginn hefði veitt þessu sérstaka athygli. Flugherinn fylgdist aðeins með hlutum sem taldir væru ógn við þjóðaröryggi.

Talsmaðurinn sagði vélina aldrei hafa flogið inn í taílenska lofthelgi og að fyrirspurn malasískra yfirvalda hefði verið ónákvæm. Þegar þeir hafi spurst fyrir á ný hefði málið verið skoðað nánar.


Tengdar fréttir

Hóta hungurverkfalli vegna flugvélahvarfsins

Aðstandendur kínverskra farþega malasísku farþegaþotunnar sem saknað hefur verið frá því 8. mars krefjast nánari upplýsinga frá yfirvöldum í Malasíu.

Dularfullt hvarf farþegaflugvélar

Þegar flug MH370 hjá Malaysia Airlines hvarf af ratsjá í góðu veðri síðastliðið laugardagskvöld gat enginn útskýrt hvernig þessi Boeing 777-farþegaflugvél gat horfið að því er virtist upp úr þurru. Síðan þá hafa misvísandi upplýsingar og alls kyns kenningar verið í gangi um hvarfið án þess að nein sönnunargögn hafi komið fram. Hvað sem því líður þá er þessi þota með 239 manneskjur um borð enn ófundin

Óttast að 239 séu látnir

Forsætisráðherra Malasíu segir of snemmt að kalla hvarf farþegaþotunnar í dag hryðjuverk.

Farþegavél hvarf af ratsjá

Víðtæk leit stendur yfir á Suður- Kínahafi að farþegaþotu Malaysian Airlines sem hvarf af radar í gærkvöldi. 239 manns voru um borð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×