Lífið

Charlie Sheen-kolla fyrir Bjarna Ben-búning

Bjarki Ármannsson skrifar
Lesendur geta dæmt um það sjálfir hversu líkir þessir menn eru um hárið.
Lesendur geta dæmt um það sjálfir hversu líkir þessir menn eru um hárið. Vísir/Valli/Getty

„Ég bara sprakk úr hlátri,“ segir Jón Gunnar Bergs, eigandi Partýbúðarinnar, um það sem hann kallar skemmtilegustu viðskipti dagsins.

Eins og Vísir hefur þegar greint frá var mjög margt um manninn í Partýbúðinni fyrr í dag, enda nálgast öskudagur óðfluga. 

Foreldrar reyna oft sjálfir að búa til frumlega búninga úr því sem er til sölu og segir Jón Gunnar móður eina hafa keypt hárkollu stílaða eftir leikaranum Charlie Sheen, þó með annað viðfangsefni í huga.

„Hún spurði hvort það mætti ekki breyta henni aðeins, laga aðeins sveipinn,“ segir Jón Gunnar. Hann segist hafa bent henni á að kollan væri þegar lík hári leikarans bandaríska.

„Svo dregur hún fram símann og sýnir mér mynd af Bjarna Ben,“ segir Jón Gunnar og á þar við fjármálaráðherra og formann Sjálfstæðisflokksins. 

Klipping þeirra tveggja er alls ekki ósvipuð, eins og sést á meðfylgjandi mynd. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×