Tækið er til en hefur aldrei verið notað Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 10. febrúar 2014 16:21 Þegar er byrjað að safna sýnum sem eru með ákveðnar breytingar en safna þarf um 50 til 100 sýnum til þess að skoða í einu vegna til að gæta kostnaðarhagkvæmi. VÍSIR/SAMSETT
Tæki til þess að mæla hvort konur séu sýktar af HPV veiru sem veldur frumubreytingum sem geta valdið leghálskrabbameini er til á Landspítalanum að sögn Kristjáns Oddssonar, yfirlæknis Leitarstöðvar Krabbameinsfélags Íslands. „Þetta tæki kom á Landspítalann fyrir fimm til sex árum síðan og þá hefði verið hægt að taka upp HPV mælingar hér á landi en af hverju það var ekki gert veit ég ekki,“ segir Kristján en um er að ræða sama tæki og klamydía er mæld með. „Við hér á leitarstöðinni funduðum með sóttvarnalækni og sérfræðingum á Landspítalanum í vor um að skoða þessa möguleika sem eru til staðar með þessu tæki,“ segir hann. Núna hafi verið gerð drög að því að fara út í tilraunamælingar. Stjórn Krabbameinsfélags Íslands hvatti heilbrigðisyfirvöld til þess með yfirlýsingu í dag að stuðla að því að hafin verði mæling á HPV-veirum í sýnum frá leghálsi sem fyrst til þess að gera leit að leghálskrabbameini enn hnitmiðaðri en hingað til. En hingað til hefur aðeins verið skimað eftir frumubreytingum í leghálsum kvenna en ekki hvort þær beri í sér veiruna sem veldur breytingunum. Þegar er byrjað að safna sýnum sem eru með ákveðnar breytingar en safna þarf um 50 til 100 sýnum til þess að skoða í einu vegna til að gæta hagkvæmi. Þegar nægilegur fjöldi sýna sé kominn þá verða þau skoðuð. Um er að ræða tilraunarsamvinnuverkefni leitarstöðvar og Landspítala þar sem farið er í ferlagreiningu til að komast að því hvort þessi aðferð myndi henta hér á landi. Þessar mælingar hafa verið teknar upp víðast hvar í heiminum og að sögn Kristjáns fæst betri og nákvæmari niðurstaða með þessari leið í ákveðnum tilfellum. HPV veirurnar eru um 30 til 40 og af þeim eru 12 til 15 sem geta valdið krabbameini. Allar veirurnar geta þó valdið frumubreytingum. „Niðurstaða slíkra HPV mælinga getur gefið nákvæmari leiðbeiningar um eftirlit og frekari greiningu frumubreytinga og hvers konar eftirlit konur þurfa og hversu þétt það þarf að vera,“ segir Kristján.
Tengdar fréttir Konur sjaldnar í skimun vegna leghálskrabbameins Skimun fyrir leghálskrabbameini verður framvegis fyrir konur á aldrinum 23 ára til 65 ára í stað 20 ára til 69 ára eins og verið hefur. Jafnframt var gerð sú breyting að í stað þess að konur fari í leit annað hvert ár verða þær boðaðar til leitar á þriggja ára fresti. 14. janúar 2014 07:30 Leghálskrabbameinsleit lækkaði dánartíðni um 91 prósent Tíðni leghálskrabbameins meðal kvenna 26 ára og yngri hefur meira en tvöfaldast frá því árið 1988. 6. febrúar 2014 09:49 Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fleiri fréttir Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Sjá meira
Konur sjaldnar í skimun vegna leghálskrabbameins Skimun fyrir leghálskrabbameini verður framvegis fyrir konur á aldrinum 23 ára til 65 ára í stað 20 ára til 69 ára eins og verið hefur. Jafnframt var gerð sú breyting að í stað þess að konur fari í leit annað hvert ár verða þær boðaðar til leitar á þriggja ára fresti. 14. janúar 2014 07:30
Leghálskrabbameinsleit lækkaði dánartíðni um 91 prósent Tíðni leghálskrabbameins meðal kvenna 26 ára og yngri hefur meira en tvöfaldast frá því árið 1988. 6. febrúar 2014 09:49