Lífið

Tryllt Sónar fyrirpartý á Paloma

Hafrún Alda Karlsdóttir
Hafrún Alda Karlsdóttir
„Við erum að halda tryllt fyrirpartý fyrir Sónar á morgun,“ segir Hafrún Alda Karlsdóttir, ritstjóri tímaritsins BAST Magazine, sem er starfrækt í Kaupmannahöfn.

Tónlistarhátíðin Sónar Reykjavík er haldin nú um helgina og Hafrún verður í Reykjavík yfir hátíðina.

„Partýið er haldið í samstarfi við Grotta Zine, en maðurinn á bakvið það er Frosti Gnarr. Við höfðum lengi talað um að gera eitthvað saman, Bast og Grotta Zine, og þetta fannst okkur kjörið tækifæri til að halda mega partý, því okkur langar til þess,“ bætir Hafrún við.

Partýið hefst klukkan níu á skemmtistaðnum Paloma.

„Það koma fram fullt af snillingum, Cell 7, DJ Russian Girls, DJ Flugvél og Geimskip og svo ætlar DJ Yamaho að slútta kvöldinu fyrir okkur í einhverjum algjörum tryllingi,“ segir Hafrún, létt í bragði.

Léttar veitingar frá Smirnoff verða í boði í byrjun kvöldsins og Hafrún hvetur sem flesta til að mæta.

„Það eru allir velkomnir. Sónar er ein skemmtilegasta helgi ársins og við hlökkum brjálæðislega til!“ segir hún að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×