Lögum um Seðlabankann verður breytt 16. febrúar 2014 14:10 VÍSIR/GVA
Lögum um Seðlabanka verður breytt að sögn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra. „Lengi hefur legið fyrir að breyta lögum um seðlabanka,“ sagði hann í þættinum Sunnudagsmorgunn á Rúv. Vinnan við breytingarnar á lögunum stendur yfir núna í fjármálaráðuneytinu og margt er til skoðunar, að sögn Sigmundar. Alltaf hafi legið fyrir að endurskoða þyrfti þær breytingar sem ráðist var í, mjög hratt og í flýti, rétt eftir bankahrunið. Pressan greindi frá því í vikunni að samkomulag hefði náðst milli stjórnarflokkanna um breytingar á lögum um Seðlabanka. Fjölga ætti seðlabankastjórum í þrjá en Már Guðmundsson hefur einn gegnt þeirri stöðu. Í sömu frétt sagði að ljóst væri að ráðningartími Más yrði ekki framlengdur sjálfkrafa til fimm ára, heldur staða allra þriggja auglýst til umsóknar. Sigmundur sagði í þættinum að ákveðin rök hnigu að því að æskilegt væri að fleiri en einn gegndi starfi seðlabankastjóra. Önnur rök hnigu að því að gott væri að hafa einn en þetta væri verið að vega og meta. Sigmundur kveðst vera ósammála stefnu Seðlabankans í nokkrum atriðum og hafa verið það um nokkurra ára skeið, meðal annars vaxtastefnunni. Hann væri ekki einn um það en bankinn hefði samt haldið sinni stefnu. Æskilegt væri að bankinn gerði meira af því að endurmeta stefnu sína.
Mest lesið Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Viðskipti innlent Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Viðskipti erlent Íbúðum í byggingu fækkar Viðskipti innlent Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Viðskipti innlent Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Viðskipti innlent Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Viðskipti erlent Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Viðskipti innlent Gleymdi að skrá sig úr stæðinu og því rukkuð um 48 þúsund Neytendur Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Viðskipti innlent Um forvitna yfirmanninn Atvinnulíf Fleiri fréttir Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Íbúðum í byggingu fækkar Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Atli Óskar ráðinn rekstrarstjóri framleiðslu Engin U-beygja hjá Play Veitingamenn verulega óánægðir með eftirlitið Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Spá umtalsverðum samdrætti í byggingu nýrra íbúða Falsaði fleiri bréf Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Hætta við yfirtökuna Harpa og Linda ráðnar forstöðumenn Stærsti samruninn í áraraðir á borð Samkeppniseftirlitsins Sylvía Kristín ráðin forstjóri Nova Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Farþegum til landsins fjölgaði um tuttugu prósent Kvika hafi grætt töluvert á því að hafna upphaflegum tilboðum „Sem betur fer eru aðrir fiskar í sjónum“ Arion og Kvika í samrunaviðræður Eyþór hættur sem framkvæmdastjóri Hopp Svona munu stækkuð Skógarböð og hótel líta út Skrautleg saga laganna hans Bubba Sætta sig ekki við höfnun Kviku Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Lofar bongóblíðu við langþráð langborð Sjá meira