Lífið

Bafta verðlaunin afhent í kvöld

Stefán Árni Pálsson skrifar
visir/AP
Bafta verðlaun bresku kvikmyndaakademíunnar verða afhent í Konunglegu óperunni í London í kvöld.

Verðlaunin eru gríðarlega virt og gefa ávallt ákveðin fyrirheit um það hvaða myndir hljóta Óskarsverðlaunin í mars.

Sigurstranglegustu myndirnar eru 12 Years a Slave, American Hustle og Gravity.

Myndin Gravity er tilnefnd til ellefu verðlauna á hátíðinni og 12 Years a Slave og  American Hustle til tíu verðlauna.

Stephen Fry verður kynnir kvöldsins en þetta mun vera níunda árið í röð sem hann tekur það hlutverk á sig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×