Íran og Sameinuðu arabísku furstadæmin á HM í Katar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. febrúar 2014 18:15 Barein keppti á HM í Svíþjóð árið 2011. Vísir/AFP
Hvorki Suður-Kóreu né Japan tókst að vinna sér sæti í úrslitakeppni HM í handbolta sem fer fram í Katar á næsta ári. Nú stendur yfir Asíumeistaramótið í Barein en þó svo að því sé ekki lokið liggur fyrir hvaða þrjú lið komust áfram á HM í Katar. Þetta eru Barein, Íran og Sameinuðu arabísku furstadæmin sem öll komust í undanúrslit keppninnar ásamt Katar sem fær þátttökurétt á HM sem gestgjafi. Íran og Sameinuðu arabísku furstadæmin munu taka þátt í sinni fyrstu heimsmeistarakeppni á næsta ári en Barein keppti á HM í Svíþjóð árið 2011. Suður-Kórea hefur ellefu sinnum komist á HM og verið þátttakandi í síðustu fjórum keppnum. Liðið sat þó eftir í sínum riðli í Asíumeistaramótinu eftir að hafa gert jafntefli við Íran og tapað fyrir heimamönnum í Barein. Japan á ríka handboltahefð en þó aðeins tvívegis komist á HM eftir mótið fór fram þar í landi árið 1997. Í bæði skiptin hafnaði Japan í sextánda sæti, síðast á HM í Svíþjóð fyrir þremur árum. Japan vann að vísu sannfærandi sigur á Sameinuðu arabísku furstadæminum í hinum riðli keppninnar í Barein en tapaði fyrir Kúveit, Óman og Katar. Í lok janúar náðu Afríkuríkin Alsír, Túnis og Egyptaland að tryggja sér þátttökurétt á HM sem og Frakkland, Danmörk og Króatía eftir gott gengi á EM í Danmörku. Spánn fær þátttökurétt sem ríkjandi heimsmeistari.
Handbolti Mest lesið Olnbogi Ægis brotnaði Körfubolti Ægir fluttur í burtu í sjúkrabíl Körfubolti Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Fótbolti Ekitike sleit hásin Fótbolti Rory McIlroy gerði dóttur sína vandræðalega Golf „Ekkert annað sem freistaði mín meira en þetta“ Handbolti „Þeir hefðu átt að henda honum út úr húsi fyrir þetta“ Körfubolti „Þessu einvígi var stolið frá okkur“ Fótbolti Sjáðu Dembélé skjóta Liverpool úr leik og markið mikilvæga hjá Atlético Fótbolti „Brugðumst vel við í krefjandi aðstæðum“ Körfubolti Fleiri fréttir Langur samningur og krafan er skýr „Ætla að klára þetta með stæl og vonandi landa þeim stóra“ „Ekkert annað sem freistaði mín meira en þetta“ „Auðvitað bara dugar þetta ekki“ „Undirbúningur, hjartað og baráttan“ „Ekki til betri skemmtun en þetta“ Uppgjörið: FH - Haukar 27-23 | FH-ingar einum sigri frá úrslitum Guðjón Valur missir besta leikmann liðsins í slæm meiðsli „Skemmtilegustu leikirnir að spila“ Fengu tveggja ára bann fyrir að svindla á þolprófi Snorri semur til 2032 Svona kynnti HSÍ nýja samninginn við Snorra og Arnór Díana fer aftur til Fram Sópurinn aftur inn í skáp hjá bæði Birgi Steini og Einari Braga Uppgjörið: Valur - KA 38-34| Valsmenn sópuðu KA í sumarfrí Bjarki klikkaði ekki á skoti í toppslagnum Með gæsahúð um allan líkamann í kveðjuleiknum Snorri og Arnór eftirsóttir: Áhugi erlendis frá en HSÍ enn í forgangi Stelpurnar okkar í neðsta styrkleikaflokki fyrir EM Ómar með fjórtán og Gísli skoraði alltaf Uppgjörið: Ísland - Portúgal 32-24| Ísland er á leiðinni á EM EM-sæti í húfi: „Mjög spennt að sjá hvar við stöndum núna“ Rekinn án skýringa og ætlar í mál Úrslitaleikur um EM-sæti: „Á ekki von á því að það komi fyrir aftur“ Ótrúlegt flug undir stjórn Guðjóns og Haukur bjó til helming marka Löwen Stjarnan einum sigri frá því að halda sér uppi Margt sem þarf að laga „Þetta er ákveðin skák“ Haukar - FH 27-22 | Haukar jöfnuðu Hafnarfjarðarslaginn Björgvins Halldórssonar minnst með einnar mínútu þögn Sjá meira