Heimsfrægur, þýskur leikari mætti á frumsýningu fatalínu 66°Norður Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 6. febrúar 2014 18:00 Götz Otto í stuði.
Ný fatalína 66°Norður fyrir veturinn 2014-15 var frumsýnd í BMW-safninu í München á dögunum. Á þriðja hundrað manns mættu á viðburðinn, þar á meðal þýski leikarinn Götz Otto. Hann er mjög frægur í Þýskalandi og lék meðal annars illmennið í Bond-myndinni Tomorrow Never Dies. Þá hefur hann líka leikið í myndum á borð við Downfall, Cloud Atlas og Iron Sky. Viðburður 66°Norður í BMW-safninu var haldinn í tengslum við ISPO sýninguna sem stóð yfir í München en sýningin er sú stærsta sinnar tegundar í útivistar- og íþróttageiranum. Góður rómur var gerður að nýju línunni sem vakti mikla athygli en fatalínan þótti passa einkar vel innan um klassíska og flotta BMW bíla frá hinum ýmsu áratugum. Meðal annars var fatnaðinum stillt upp við mótorhjól frá árinu 1926 sem er einmitt sama ár og 66°Norður var stofnað.Línan vakti lukku.„Þetta var einstaklega skemmtilegur og vel heppnaður viðburður og mikill heiður að fá að koma inn í þetta glæsilega safn og frumsýna nýja vetrarlínu með þessum hætti. Þetta er mikilvægt fyrir okkur að fá svona mikla og jákvæða athygli í Þýskalandi,“ segir Bjarney Harðardóttir hjá 66°Norður. „Það er mjög skemmtilegt að geta sameinað flotta bílahönnun og fatahönnun hér á BMW safninu. Það er með gleði og stolti sem við bjóðum 66°Norður velkomið hingað að sýna nýjustu vörulínu sína,“ segir Ralf Pedepeter, forstjóri BMW-safnsins í München.Bílar og tíska fóru saman í safninu.
Mest lesið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Lífið Hvað kýs fræga fólkið? Lífið Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Lífið Komin á eftirlaun og með skotheldar leiðir til að ferðast ódýrt um Ítalíu Ferðalög Fleiri fréttir Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Sjá meira