Þórir segir óheppilegt að leikmaður og þjálfari séu í sambandi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 24. janúar 2014 09:00 Þórir Hergeirsson á hliðarlínunni á HM í desember. Vísir/AFP
Þjálfari í efstu deild norsku knattspyrnunnar er sakaður um að hafa kynferðislega áreitt leikmann í liði sínu. Þórir Hergeirsson, þjálfari norska kvennalandsliðsins í handbolta, segir ekki faglegt að leikmaður og þjálfari sama liðs eigi í ástarsambandi. Forsaga umfjöllunar í norskum fjölmiðlum er sú að Öyvind Eide var ráðinn þjálfari Stabæk í ársbyrjun 2012. Um sumarið gekk Leni Laresen Kaurin til liðs við félagið og var leikmaður þess út árið 2013. Þann 10. janúar síðastliðinn skrifaði Lisa-Marie Woods, leikmaður Stabæk, langa bloggfærslu um kynferðislega áreitni sem félagi hennar úr landsliðinu hefði orðið fyrir. Engin var þó nafngreindur. Í síðustu viku skýrði Eide svo frá því í norsku dagblaði að hún hefði orðið fyrir kynferðislegri áreitni í herbúðum Stabæk. Málið var tekið fyrir hjá forráðamönnum félagsins sem gáfu þjálfaranum skriflega aðvörun en leyfðu honum að halda áfram störfum.Lisa-Marie Woods.Vísir/AFPÞórir Hergeirsson, þjálfari landsliðsins, er spurður út í málið í viðtali við Verdens Gang. Þar segir Þórir mikilvægt að öll kurl komi til grafar í málinu svo hægt sé að hreinsa andrúmsloftið. Hann þekki aðeins til þess hluta málsins sem greint hafi verið frá í fjölmiðlum. „Það getur verið að mikilvæg atriði eigi enn eftir að koma fram. Að því sögðu er ljóst að þetta er mjög óheppilegt og óviðunandi í íþróttum,“ segir Þórir. Hann bætir við að þótt himinn og haf sé á milli kynferðislegrar áreitni og ástarsambanda telji hann að slíkt gangi ekki upp í liðsíþrótt. Það kom berlega í ljós þegar nuddari landsliðsins, Björn Olsson, og Heidi Loke felldu hugi saman í fyrra. „Það er besta mál að þau séu par en við getum ekki notað hann lengur í landsliðinu. Það hefði ekki verið gott fyrir andann í hópnum okkar,“ segir Þórir. Mosfellingurinn Telma Hjaltalín Þrastardóttir er leikmaður Stabæk sem varð bikarmeistari í Noregi á síðustu leiktíð.
Fótbolti Handbolti Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Enski boltinn Conor McGregor segist vera sá besti í sögunni og ætlar að sanna það Sport Konurnar fá helminginn af verðlaunafé bandaríska karlalandsliðsins Fótbolti Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti Skoraði í styrktarleik fyrir móður sína Íslenski boltinn Lýsandinn, Tevez og Agüero sturluðust þegar Messi jafnaði Fótbolti Fleiri fréttir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Sjá meira