Sakar bæjarstjóra um að tala niður fjárhag Kópavogsbæjar 17. janúar 2014 07:20 Guðríður Arnardóttir. Vísir/Stefán
Guðríður Arnardóttir, fráfarandi oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi sakar Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóra sjálfstæðismanna um dómgreindarskort sem hún segir hafa nýjum hæðum þegar hann í kjölfar eigin upphrópana og gífuryrða hafi sjálfur farið fram á nýtt lánshæfismat fyrir bæinn. Í gær var tilkynnt um að lánshæfismat bæjarins hafi verið lækkað í kjölfar þess að minnihlutinn í bænum fékk tillögu um átak í húsnæðismálum samþykkta í bæjarstjórn með aðstoð Gunnars Birgissonar, sjálfstæðisflokki. Guðríður segir að það hljóti að vera einsdæmi að bæjarstjóri standi á torgum úti og tali niður fjárhag bæjarins og sakar hún Ármann um að vinna beinlínis gegn hag Kópavogs. Guðríður segir að fjárútlát bæjarins muni nema um 1,8 milljörðum, en ekki þremur milljörðum, eins og Ármann hefur haldið fram og að sú fjárhæð muni dreifast á lengra tímabil en eitt ár. Yfirlýsing Guðríðar fer hér á eftir í heild sinni: „Dómgreindarskortur bæjarstjóra Kópavogs náði nýjum hæðum þegar hann í kjölfar eigin upphrópana og gífuryrða fór sjálfur fram á nýtt lánshæfismat fyrir bæinn. Það hlýtur að vera einsdæmi að bæjarstjóri standi á torgum úti og tali niður fjárhag bæjarins. Nákvæmlega engin ástæða var á þessum tímapunkti til þess að kalla eftir nýju mati. Þarna vinnur Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri beinlínis gegn hag bæjarins, keyrir sjálfur niður lánhæfismatið í tengslum við einhverja persónulegra innansveitarkróniku Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. Bæjarstjóri er algjörlega að bregðast hlutverki sínu sem er að framfylgja vilja bæjarstjórnar en með þessu er hann að grafa undan lýðræðislegum ákvörðunum hennar. Eins og bæjarstjóra hefur margoft verið bent á er hér um að ræða fjárútlát sem nema um 1,8 milljörðum og mun sú upphæð ekki falla öll til á árinu 2014. Samt kýs bæjarstjóri að ýkja vænt útgjöld bæjarins og byggir því ósk sína um endurnýjað lánshæfismat á röngum forsendum.Við ítrekum að með þessari samþykkt meirihluta bæjarstjórnar er verið að koma til móts við fjölda fólks sem býr við óöryggi á leigumarkaði, afleitar aðstæður og jafnvel húsnæðisleysi.“
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Innlent Fleiri fréttir „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Sjá meira