Innlent

Aukning á rannsóknum kynferðisbrota hjá lögreglunni í Árnessýslu

Samúel Karl Ólason skrifar
Mynd/Pjetur
Skráð brot og verkefni hjá lögreglunni í Árnessýslu voru 6882 á síðasta ári á móti 7952 á árinu 2012. Veruleg aukning varð á rannsóknum kynferðisbrota hjá rannsóknardeild lögreglunnar, sem og alvarlegra slysa og líkamsárása.

Kynferðisbrot voru 40 árið 2013, alvarleg slys voru 26 og þar af níu banaslys og alvarlegar líkamsárásir voru 17. Árið 2012 voru kynferðisbrot 16, alvarlega slys 12 og þar af tvö banaslys og alvarlegar líkamsárásir voru 13.

Þetta kemur fram í fyrstu dagbók lögreglunnar í Árnessýslu á nýju ári fyrir 1. – 6. janúar.

Þá féllu tveir ferðamenn í hálku á föstudaginn og hlutu beinbrot. Annars vegar lærbrotnaði 69 ára karlmaður sem datt við fossinn Faxa í Tungufljóti. Hins vegar rann 58 ára gömul kona til við Gullfoss og úlnliðsbrotnaði.

Karlmaður fór inn á heimili í Hveragerði og stal þaðan úlpu, veski og öðrum hlutum. Þegar lögreglan vitjaði mannsins fundust fleiri munir á heimili mansins. Hafði hann þá tekið hluti úr mannlausri bifreið í götunni.

Um 70 lítrum af dísilolíu var stolið úr dráttavél sem stóð við Klængsbúð í Þorlákshöfn á tímabilinu frá kvöldi gamlársdags fram að hádegi 2. janúar. „Þeir sem veitt geta upplýsingar um þjófnaðinn eru beðnir um að hafa samband í síma lögreglu 480 1010.“

Þá var lögregla kölluð í hús í Grímsnesi á nýjársnótt vegna ósættis tengdra einstaklinga, karls og konu. „Karlinn veitti konunni áverka í andliti en konan greip til brotinnar flösku og réðist að karlinum með þeim afleiðingum að hann hlaut skurð á baki.  Hann var fluttur á heilsugæsluna á Selfossi þar sem gert var að sárum hans.“

Eldur kom upp í skúr við Gagnheiði á fimmtudag, en skúrinn hafði áður gegnt hlutverki skólastofu. Hann skemmdist lítið og var eldinum haldið niðri með handslökkvitækjum þar til slökkvilið Brunavarna Árnessýslu kom á vettvang. Eldsupptök eru ekki ljós og eru í rannsókn.

Lögreglunni bárust tvær tilkynningar um að ekið hafi verið á kyrrstæðar mannlausar bifreiðar á Selfossi. Í báðum tilvikum eru þeir sem eiga hlut að máli, eða þeir sem geta veitt upplýsingar, beðnir um að setja sig í samband við lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×