Aukning á rannsóknum kynferðisbrota hjá lögreglunni í Árnessýslu Samúel Karl Ólason skrifar 6. janúar 2014 11:55 Mynd/Pjetur
Skráð brot og verkefni hjá lögreglunni í Árnessýslu voru 6882 á síðasta ári á móti 7952 á árinu 2012. Veruleg aukning varð á rannsóknum kynferðisbrota hjá rannsóknardeild lögreglunnar, sem og alvarlegra slysa og líkamsárása. Kynferðisbrot voru 40 árið 2013, alvarleg slys voru 26 og þar af níu banaslys og alvarlegar líkamsárásir voru 17. Árið 2012 voru kynferðisbrot 16, alvarlega slys 12 og þar af tvö banaslys og alvarlegar líkamsárásir voru 13. Þetta kemur fram í fyrstu dagbók lögreglunnar í Árnessýslu á nýju ári fyrir 1. – 6. janúar. Þá féllu tveir ferðamenn í hálku á föstudaginn og hlutu beinbrot. Annars vegar lærbrotnaði 69 ára karlmaður sem datt við fossinn Faxa í Tungufljóti. Hins vegar rann 58 ára gömul kona til við Gullfoss og úlnliðsbrotnaði. Karlmaður fór inn á heimili í Hveragerði og stal þaðan úlpu, veski og öðrum hlutum. Þegar lögreglan vitjaði mannsins fundust fleiri munir á heimili mansins. Hafði hann þá tekið hluti úr mannlausri bifreið í götunni. Um 70 lítrum af dísilolíu var stolið úr dráttavél sem stóð við Klængsbúð í Þorlákshöfn á tímabilinu frá kvöldi gamlársdags fram að hádegi 2. janúar. „Þeir sem veitt geta upplýsingar um þjófnaðinn eru beðnir um að hafa samband í síma lögreglu 480 1010.“ Þá var lögregla kölluð í hús í Grímsnesi á nýjársnótt vegna ósættis tengdra einstaklinga, karls og konu. „Karlinn veitti konunni áverka í andliti en konan greip til brotinnar flösku og réðist að karlinum með þeim afleiðingum að hann hlaut skurð á baki. Hann var fluttur á heilsugæsluna á Selfossi þar sem gert var að sárum hans.“ Eldur kom upp í skúr við Gagnheiði á fimmtudag, en skúrinn hafði áður gegnt hlutverki skólastofu. Hann skemmdist lítið og var eldinum haldið niðri með handslökkvitækjum þar til slökkvilið Brunavarna Árnessýslu kom á vettvang. Eldsupptök eru ekki ljós og eru í rannsókn. Lögreglunni bárust tvær tilkynningar um að ekið hafi verið á kyrrstæðar mannlausar bifreiðar á Selfossi. Í báðum tilvikum eru þeir sem eiga hlut að máli, eða þeir sem geta veitt upplýsingar, beðnir um að setja sig í samband við lögreglu.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Sjá meira