Hægt að fletta upp ættingjum vestanhafs 7. janúar 2014 20:30
Vestur-íslensk kona hefur í samstarfi við íslenskan ættfræðing opnað ættfræðigagnagrunn þar sem fólk getur flett upp ættingjum sínum vestanhafs. Sunna Pam Furstenau er fædd og uppalin í Norður-Dakóta í Bandaríkjunum. Föðurætt Sunnu er íslensk, en fjölskylda hennar flutti vestur um haf á árunum 1882-1895. Sunna flutti í dag erindi í Háskóla Íslands um íslenska afkomendur landnema í Norður-Ameríku. Þetta er í áttunda sinn sem hún kemur til Íslands til að flytja erindi í máli og myndum um afkomendur íslensku landnemanna í Norður-Ameríku og hvernig þeim hefur tekist að varðveita íslenska menningararfinn. Sunna hefur frá árinu 2003 unnið að ættfræðirannsóknum. Nýlega keypti hún ættfræðigrunn Hálfdánar Helgasonar og stofnaði utan um hann sjálfseignarstofnunina Icelandic Roots, sem virkar á svipaðan hátt og Íslendingabók, en þar getur fólk flett upp íslenskum ættingjum sínum bæði hér á landi og vestanhafs. Sunna og Hálfdán munu á komandi árum vinna að áframhaldandi þróun gagnagrunnsins, en hann er að finna á vefsíðu Iceland Roots. Íslenskur menningararfur er Sunnu afar hugleikinn. Þá er þjóðbúningur sem fjölskylda hennar gaf henni í fimmtugsafmælisgjöf árið 2010 í miklu uppáhaldi. „Þegar ég fékk búninginn hélt ég að ég myndi kannski nota hann tvisvar á ári við sérstök tilefni en nú hef ég notað hann oftar en sextíu sinnum. Ég klæðist honum við hvert tækifæri,“ segir Sunna.
Mest lesið Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent „Við ætlum að upplifa stóra drauminn hans Kristians Helga” Innlent Keyptu ónýtt hús og fá ekki áheyrn Innlent Lögreglumaður á sjúkrahúsi eftir alvarlega árás á Goslokahátíð Innlent Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent Pilturinn er fundinn Innlent Gufunesmálið: Hringdu um miðja nótt og sögðu hinn látna vera kynferðisafbrotamann Innlent Fleiri fréttir Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Pilturinn er fundinn „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Sjá meira
Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent
Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent