Er Þórir búinn að smita stelpurnar? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. desember 2014 16:45 Norsku stelpurnar hafa unnið alla fimm leiki sína á mótinu. Vísir/Getty
Norska kvennalandsliðið í handbolta hefur unnið fimm fyrstu leiki sína á Evrópumótinu í Ungverjalandi og Króatíu og stelpurnar hans Þóris Hergeirssonar hafa þegar tryggt sér sæti í undanúrslitunum þrátt fyrir að enn sé ein umferð eftir af milliriðlunum. Þórir Hergeirsson hefur verið að glíma við flensuna og var með hita þegar hann stýrði norska liðinu til endurkomusigurs á móti Póllandi í gærkvöldi. Með þeim sigri gulltryggði liðið sig inn í undanúrslitin langt á undan öðrum liðum á mótinu. Silje Solberg, aðalmarkvörður norska liðsins, vaknaði hinsvegar í morgun með sárandi í hálsi og þá hefur flensan einnig verið að ganga innan þjálfarateymis norska liðsins. Aðstoðarþjálfarinn Mia Högdahl veiktist en er öll að braggast, leikgreinandinn Wenche Halvorsen Stensrud hefur líka verið veikur og sálfræðingurinn Britt Tajet-Foxell er farinn heim vegna veikindanna. Slappleiki Silje Solberg vekur upp smá áhyggjur hjá lækni liðsins Nils Ivar Leraand. „Ég þarf að skoða Silje betur. Óþægindi í hálsi hljómar líkt því og Þórir Hergeirsson var að glíma við," sagði Nils Ivar Leraand í viðtali við Verdens Gang en þar hefur blaðið líka eftir Þórir sjálfum að hann passi sig á því að umgangast leikmenn liðsins sem minnst vegna veikinda sinna. Norska kvennalandsliðið hefur verið heppið á undanförnum stórmótum og sloppið við veikindi en flensan getur verið fljót að smitast innan liðs og það getur verið dýrkeypt þegar örlög liða á stórmóti geta ráðist í einum leik. Þórir var ekki tilbúinn að gefa það út í viðtali við VG að Silje Solberg yrði hvíld á móti Ungverjum á morgun en sá leikur skiptir norska liðið engu máli. Noregur mun vinna milliriðilinn sinn saman hvernig fer í þeim leik. „Það er of snemmt að álykta eitthvað um það. Við tökum samt aldrei áhættu með heilsu leikmanna,"sagði Þórir.
Handbolti Mest lesið Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd Fótbolti Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Fótbolti Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Fótbolti Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Fótbolti Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Fótbolti Arftaki Ronaldo áfram sjóðheitur í sigri Fótbolti FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Íslenski boltinn Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Fótbolti Fleiri fréttir Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Minden keypti Erling af ÍBV Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Sjá meira