Fyrsti úrslitaleikur þeirra spænsku í sex ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. desember 2014 18:34 Spænska kvennalandsliðið er komið í úrslitaleikinn á EM 2014. Vísir/AP
Spænska landsliðið er komið í úrslit á Evrópumóti kvenna í handbolta eftir eins marka sigur í undanúrslitaleik á móti ríkjandi Evrópumeisturum Svartfjallalands í kvöld. Spánn vann leikinn 19-18 eftir að hafa verið fimm mörkum yfir í hálfleik, 13-8. Spánn mætir annaðhvort Noregi eða Svíþjóð í úrslitaleiknum á sunnudaginn en seinni undanúrslitaleikurinn fer fram seinna í kvöld. Elisabeth Pinedo var markahæst í spænska liðinu með fimm mörk en Marta Mangué skoraði fjögur mörk. Alexandrina Cabral var frábær í vörn spænska liðsins og í markinu tók Silvia Navarro 18 skot. Silvia Navarro, sem var líka frábær í stórsigrinum á Dönum í leiknum á undan, varði fimmtíu prósent skotanna sem á hana komu og var líka valinn maður leiksins. Spænska liðið skoraði þrjú fyrstu mörk leiksins og komst síðan í bæði 7-2 og 12-5. Svartfjallaland minnkaði muninn í fimm mörk í hálfleik með því að vinna síðustu fimm mínútur fyrri hálfleiksins 3-1. Lið Svartfjallaland gafst ekki upp og vann hægt og róleg upp muninn í seinni hálfleiknum. Liðið náði loks að minnka muninn í eitt mark. 18-17, þegar tæpar tvær mínútur voru eftir en nær komust þær ekki. Spænska liðið hélt út og fagnaði sæti í úrslitaleiknum. Spænska kvennalandsliðið hefur aldrei orðið Evrópumeistari kvenna í handbolta en tapaði fyrir Noregi í úrslitaleik í Makedóníu árið 2008.
Handbolti Mest lesið Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd Fótbolti Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Fótbolti Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Fótbolti Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Fótbolti Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Fótbolti FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Íslenski boltinn Arftaki Ronaldo áfram sjóðheitur í sigri Fótbolti Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Fótbolti Fleiri fréttir Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Minden keypti Erling af ÍBV Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Sjá meira