Þórir kominn með norsku stelpurnar í úrslitaleikinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. desember 2014 20:57 Þórir Hergeirsson. Vísir/AFP
Norska kvennalandsliðið í handbolta spilar til úrslita á Evrópumótinu í Ungverjalandi og Króatíu eftir fjögurra marka sigur á Svíþjóð, 29-25, í undanúrslitaleik liðanna í kvöld. Noregur mætir Spáni í úrslitaleiknum á sunnudaginn en Svíþjóð spilar um bronsið á móti fráfarandi Evrópumeisturum Svarfjallalands. Þetta er sjöunda Evrópumótið í röð þar sem norska liðið spilar til úrslita en Þórir Hergeirsson hefur komið að öllum þessum gullleikjum, fyrst sem aðstoðarþjálfari og svo sem aðalþjálfari frá og með EM 2010. Norsku stelpurnar byrjuðu leikinn frábærlega og skoruðu þrjú fyrstu mörkin. Fyrsta sænska markið kom ekki fyrr en eftir tæplega fjögurra mínútna leik. Þær sænsku minnkuðu muninn í 3-2 en þá kom annar frábær sprettur hjá norska liðinu sem var komið með sex marka forskot, 9-3, eftir rúmlega fjórtán mínútna leik. Svíar minnkuðu muninn fyrst í 9-6 með þremur mörkum í röð og svo enn frekar í eitt mark, 10-9, þegar rúmar fjórar mínútur voru eftir af hálfleiknum. Norska liðið leiddi síðan að lokum með tveimur mörkum í hálfleik, 13-11. Sænska liðið beit svolítið frá sér í byrjun seinni hálfleiks og minnkað muninn ítrekað í eitt mark, síðast í 18-17, þegar 20 mínútur voru eftir af leiknum. Norsku stelpurnar gengu þá nánast frá leiknum, sænska liðið skoraði ekki sex mínútur og á sama tíma skoruðu Norðmenn fjögur mörk í röð og komust í 22-17. Norska liðið náði mest sex marka forskoti á lokakaflanum og vann að lokum afar öruggan sigur. Norska liðið náði „aðeins“ fimmta sæti á Heimsmeistaramótinu í Serbíu í fyrra en Þórir er búinn að byggja upp nýtt frábært lið sem verður spennandi að sjá í úrslitaleiknum á sunnudaginn.
Handbolti Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport ÍA – Víkingur R. | Toppliðið í bikarleik uppi á Skaga Íslenski boltinn Almar ekki í kassanum Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira