Innlent

Eins og að strá salti í sárin

Birta Björnsdóttir skrifar
Daði Freyr Kristjánsson var fyrir um tveimur mánuðum dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar fyrir brot gegn tveimur sjö ára stúlkum.

Maðurinn kom að máli við stúlkurnar í janúar í fyrra hér  við strætóskýli Árbænum og sagðist hafa séð þær hnupla sælgæti og þær yrðu að koma með honum, annars myndi hann hringja á lögregluna. Hann ók svo með stúlkurnar á afvikinn stað við Rauðavatn.

Daði Freyr kyssti aðra stúlkuna á kinnina og þuklaði á þeim báðum utan klæða. Þegar þær brugðust illa við ók hann með þær til baka. Hann var á dögunum dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar og gert að greiða hvorri stúlku fyrir sig 800 þúsund krónur í bætur.

Foreldrar stúlknanna fengu svo fyrr í vikunni fregnir af því að Daði Freyr ætli að áfrýja dómnum til Hæstaréttar, og fari fram á refsilækkun sem og að bótakröfurnar verði lækkaðar.

Faðir annarar stúlkunnar segir fréttina hafa haft mikið áhrif á þau.

„Við ætluðum ekkert að aðhafast eftir að dómurinn féll en fyrst hann hefur ákveðið að áfrýja getum við ekki orða bundist lengur," segir faðirinn.

Rúmir tveir mánuðir eru liðnir frá því að dómurinn féll, en faðirinn hafði fengið þær upplýsingar að Daði Freyr hefði aðeins 4 vikur til að áfrýja.

Faðirinn segir biðina ekki síst erfiða þar sem brotamaðurinn búi í næsta nágrenni við fjölskylduna.

„Það er mjög erfitt, við höfum rekist á hann hér í hverfinu," segir faðirinn en viðtalið í heild sinni má heyra í meðfylgjandi myndskeiði.

Faðirinn vill ekki tjá sig um áhrifin sem þetta hefur haft á dóttur hans en segir málið allt hafa verið fjölskyldunni erfitt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×