Herjólfur snérist snögglega: "Með snarræði tókst skipstjóra að rétta skipið af“ Kjartan Atli Kjartansson skrifar 15. október 2014 16:24 Rannsóknarnefnd sjóslysa birti skýrslu sína í dag.
Í skýrslu rannsóknarnefndar sjóslysa, sem kom út í dag, er fjallað um innsiglingu Herjólfs í Landeyjahöfn í nóvember í fyrra. Í innsiglungunni fékk skipið á sig öldu og snérist í um það bil 35 gráður til bakborða. Í skýrslunni segir orðrétt: „Skipstjóra tókst að rétta skipið á stefnu á milli garðanna en þá snérist það allt í einu aftur u.þ.b. 35° í sama borð og stefndi á vestari garðinn. Með snarræði tókst skipstjóra að rétta skipið af og stýra því inn í höfnina. Í skýrslunni segir einnig: „Þetta er fjórða atvikið af sama toga sem RNSA hefur tekið til rannsóknar (sjá mál nr. 148/10, 108/11 og 127/12) og ágengar spurningar verið uppi um það hvort Herjólfur henti við þessar aðstæður.“Ekki siglt í Landeyjahöfn í tvo daga Ekki hafði verið siglt til hafnarinnar í tvo daga, áður en atvikið átti sér stað, vegna aðstæðna. Þegar ákveðið var að sigla til Landeyjahafnar virtust aðstæður líta vel út, eins og kemur fram í skýrslunni. Stuðst var við myndir úr upptökuvél í landi, staðsett var við höfnina, til þess að meta aðstæður. Í skýrslunni kemur einnig fram að á leiðinni í Landeyjahöfn hafi vindurinn aukist og var kominn í VSV 12-16 metra á sekúndu. Þar er sagt frá því hvernig skipstjórinn hafi sagst hafa hægt á ferðinni þegar skipið nálgaðist hafnarmynnið, eins og vani er. „Hann kvaðst hafa þurft að setja á fulla ferð þegar fyrra ólagið kom til að rétta það af. Skipið var þá komið mjög nálægt hafnargörðunum og vegna seinna ólagsins þurfti skipstjóri að beita fullu vélarafli áfram,“ segir í skýrslunni. Þar segir ennfremur: „Fram kom hjá skipstjóra að einu merki þess að þetta væri í aðsigi væri sú að nokkrum sekúndum áður hefði stórt brot lent á vesturgarðinum. Á myndinni hér að neðan sést alda fyrir utan hafnargarðinn sem hafnarstjóri tók skömmu áður en skipið kom. Það er mat skipstjórnarmanna að þetta verði að teljast nokkuð mikið brot miðað við að öldudufl sýndi aðeins 2,1 m ölduhæð.“Herjólfur viðkvæmur? Í skýrslunni er þeirri spurningu velt upp hvort að Herjólfur væri mjög viðkvæmur fyrir því að fá á sig sjó á afturhornið, eins og það er orðað í skýrsunni. Þar kemur fram að leitað hafi verið til fyrirtækisins Ship Design & Consult GmbH, sem gefur ráðleggingar í málum sem þessum „Þess var óskað sérstaklega að skoðað yrði skrokklag, gerðir útreikningar til að leggja mat á stefnufestu skipsins og leiða líkum að því hvaða ástæður gætu verið fyrir því að Herjólfur hafi snúist allt að 40° fyrir utan Landeyjahöfn á um 5-7 sekúndum.“ Fyrirtækið lagði til að breytingar yrðu gerðar á ákveðnum atriðum sem gera það að verkum að Herjólfur heldur illa stefnu. Lagt var til að breytingar yrðu gerðar á perustefni og slyngubrettum. Í áliti rannsóknarnefndarinnar, sem kemur fram í lok skýrslunnar segir orðrétt: „Nefndin telur að atvikið megi rekja til aðstæðna fyrir utan Landeyjahöfn og Herjólfur virðist henta illa við aðstæður sem þessar. Nefndin telur brýnt að nú þegar verði öryggismálum hafnarinnar komið í viðunandi horf.“
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Innlent Fleiri fréttir Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Sjá meira