Kveðja frá Jesú Þórdís Lilja Gunnarsdóttir skrifar 19. mars 2014 10:00 Grátmúrinn í Jerúsalem er helgasti staður gyðinga. Hér stendur Fríða Rós með Grátmúrinn og Al-Aqsa-moskuna í bakgrunni. myndir/Fríða Rós Valdimarsdóttir
Mannfræðingurinn Fríða Rós Valdimarsdóttir upplifir daglega gleði og sorgir á slóðum Jesú Krists. Hún hitar sig líka upp fyrir elliheimilið. Fríða Rós flutti til Jerúsalem í fyrrasumar þegar eiginmaður hennar, Arnar Gíslason, var ráðinn til UN Women í Palestínu. Þar búa þau með barnungri dóttur sinni og una hag sínum vel. - Hvað drífur á daga þína í Jerúsalem, Fríða Rós? „Ég er aðallega í því að skoða mig um, sjá til þess að barninu okkar leiðist ekki og svo hef ég látið gamlan draum rætast sem er að læra að spila bridds. Ég er að hita mig upp fyrir elliheimilið.“ - Hvernig er að búa í þessari sögufrægu borg? „Það er áhugavert, spennandi, skemmtilegt, erfitt, sorglegt, yndislegt og furðulegt. Stundum allt á sama tíma.“ - Hvernig eru heimamenn í daglegum samskiptum? „Þeir eru eins misjafnir og þeir eru margir. Jerúsalem er undir stjórn Ísraela en hluti borgarinnar tilheyrir Palestínumönnum og þar bý ég. Alls staðar er her- og lögregluvald sýnilegt og ekki hægt að venjast því að vera á götum úti og ganga á eftir herkrökkum um tvítugt sem öll bera brjálæðisleg skotvopn. Ofbeldi ísraelskra yfirvalda gegn Palestínumönnum er alls staðar og alltumlykjandi. Þau virðast nota öll tækifæri til að gera Palestínumönnum erfiðara fyrir í lífinu. Svo þegar þrengir jafn mikið að fólki og hér í Jerúsalem kemur hunangið út einhvers staðar og við höfum kynnst stórkostlega skemmtilegum og yndislegum manneskjum.“Fríða Rós segir erfitt að venjast stórum skotvopnum sem meðal annars eru borin af ungum hermönnum um alla borg.- Hvað hefur komið þér mest á óvart? „Landnemabyggðirnar. Ég vissi að Ísraelar væru búnir að taka yfir land Palestínumanna og setja upp sínar byggðir, en fjöldi húsa, stærðin á svæðunum og látlaust yfirbragðið á byggðum Jerúsalem er óhugnanlegt og eitthvað sem er erfitt að trúa fyrr en maður sér það með eigin augum. Þá kom svakalega á óvart hvað allt er dýrt hérna. Margt er á sama verði og heima á Íslandi en laun heimafólks langt í frá sambærileg. En vitaskuld er dýrt að halda uppi hernámi með öllum þeim kostnaði sem því fylgir.“ - Hefurðu ferðast um landið helga? „Já, við fjölskyldan reynum að fara í ferðalag um hverja helgi. Það er nauðsynlegt að komast út úr borginni og anda að sér fersku lofti eyðimerkurinnar fyrir austan, láta sig fljóta í Dauðahafinu, keyra um Vesturbakkann, skella sér á strönd við Miðjarðarhafið eða hreinlega tapa sér í gleði í tívolígarði. Við keyrum oft til Jeríkó en þar er heitara en í Jerúsalem. Um daginn keyrðum við til Jenín og heilluðumst af fegurð landsins á leiðinni. Ég hlakka líka til að að kynnast borginni Nablus betur. Um páskana ætlum við til bæjarins Aqaba sem stendur við Rauðahafið í Jórdaníu. Þaðan munum við fara í dagsferð til Petru sem ég hlakka óskaplega mikið til að sjá.“Fæðingarstaður Jesú Krists í Betlehem. Þar hefur logað ljós á olíuluktum um aldir alda.- Hvað er markverðast að sjá og upplifa í kringum þig? „Hér eru eiginlega perlur út um allt. Það er ómissandi að fljóta í Dauðahafinu og þar fá allir hláturskast í fyrsta skiptið. Við förum með alla sem heimsækja okkur að skoða sögulega staði í Betlehem og til að sjá öll Banksy-verkin sem eru aðallega í Betlehem og Ramallah. Þá er gaman að ganga um gömlu borgina í Jerúsalem og sjá staðina sem við höfum heyrt um síðan við fæddumst. Það er líka mjög sérstakt að ganga um eyðimörkina og upplifa kyrrðina. Að lokum verð ég að nefna Jaffa, bæði til að versla og skoða sig um.“ - Hvernig er að versla í Jerúsalem? „Jerúsalem er engin sérstök verslunarborg en það er gaman að kaupa þar palestínskt handverk, klúta og minjagripi. Þá er hægt að prútta vel í gömlu borginni.“ - Hvernig eyðir þú frítímanum? „Aðallega í ferðalög, dagsferðir eða helgarferðir.“ - Hvernig tilfinning er að vera stödd á slóðum Jesú Krists? „Ég átti einmitt að skila kveðju frá honum ...“
Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Billie Eilish gegndi mikilvægu hlutverki á stóra degi bróður síns Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fleiri fréttir Billie Eilish gegndi mikilvægu hlutverki á stóra degi bróður síns Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Sjá meira