Meðvitað öryggi í stað breikkunar Hvalfjarðarganga Birna Hreiðarsdóttir skrifar 20. mars 2014 07:00 Hvalfjarðargöngin voru vel heppnuð framkvæmd og mikil samgöngubót á sínum tíma. Spölur, fyrirtækið sem að þessu stóð, á hrós skilið fyrir að gangast í verkefnið og skila því með glæsibrag í samvinnu við stjórnvöld sem greiddu hluta kostnaðarins. Þegar göngin verða að fullu greidd fær ríkið þau til eignar, þó ekki síðar en árið 2018. Að undanförnu hafa forsvarsmenn Spalar sett fram það sjónarmið í fjölmiðlum að vegna mikillar aukningar á umferð um göngin sé nauðsynlegt að tvöfalda þau til að uppfylla öryggiskröfur. Framkvæmdin muni kosta um 9 milljarða króna, sem hefði í för með sér framlengingu á innheimtu veggjalda næstu áratugina. Jafnframt hefur komið fram af hálfu forsvarsmanna Spalar að málið „sé á herðum stjórnvalda“, sem þýðir að samþykki og fjármagn þurfi að koma til frá ríkinu eigi framkvæmdin að verða að veruleika. Mikilvægt er að stjórnvöld marki skýra stefnu í þessu máli, boltinn er í raun hjá þeim.Viðmið um tvöföldun vegganga Samkvæmt tölum frá Speli hefur dagleg umferð undanfarin 5 ár um göngin verið að meðaltali um 2.600 ökutæki á hvora akrein. Nokkuð dró úr umferð á árunum 2009-12 en jókst aftur árið 2013. Í ljósi þess að mikil aukning hefur orðið á fjölda ferðamanna til landsins gefa þessar tölur ekki til kynna að vænta megi umtalsverðrar aukningar á umferð um göngin. Í viðauka við reglugerð um öryggiskröfur í jarðgöngum (nr. 992/2007) kemur fram það mat, sem byggt er á samevrópskum viðmiðum, að reisa beri tvö aðskilin gangarör (væntanlega með tveimur akreinum í hvora átt) ef áætlanir næstu 15 árin sýna að dagsumferðin muni fara yfir 10.000 ökutæki í hvora átt. Þetta er um fjórföld sú umferð sem fer um Hvalfjarðargöng nú. Miðað við framreiknaðar mannfjölda- og ferðamannaspár er útilokað að umferðin um Hvalfjarðargöng aukist svo mikið næstu 15-30 árin. Hörmuleg slys hafa orðið á undanförnum árum í veggöngum víðs vegar um heim sem hefur leitt til þess að öryggiskröfur hafa verið hertar sem hefur leitt til fækkunar alvarlegra slysa. Árið 1999 létust 39 manns í hræðilegu slysi í Mont Blanc-veggöngunum milli Frakklands og Ítalíu. Göngin voru endurbyggð frá grunni og eru nú talin ein þau öruggustu í heimi. Þau eru rúmlega tvöfalt lengri en Hvalfjarðargöng en engu að síður aðeins ein akrein í hvora átt. Þar gildir bæði lágmarks- og hámarkshraði (50–70 km/klst.) og áskilin er lágmarksfjarlægð milli ökutækja við akstur í gegnum göngin. Í Frakklandi og á Ítalíu búa um 130 milljónir manna. Ef göng með einni akrein í hvora átt nægja þeim, er virkilega nauðsynlegt að byggja tvíbreið göng hér á landi? Í Noregi eru hátt í 900 veggöng, flest einbreið.Til framtíðar Í stað tvöföldunar Hvalfjarðarganga hlýtur meginverkefnið á næstunni að vera aukið öryggið, t.d. þarf að skoða byggingu öryggisganga meðfram göngunum og útgönguleiðir inn í þau á vissu millibili. Þannig geti vegfarendur yfirgefið aðalgöngin ef slys ber að höndum. Einnig virðist loftgæðum vera áfátt í Hvalfjarðargöngum. Það er umhugsunarefni að gangandi vegfarendur og hjólreiðafólk geti ekki notfært sér göngin nú. Vera má að lausn sé finnanleg fyrir þessa vegfarendahópa. Brýnt er að endurskoða reglur um flutning á hættulegum farmi um göngin, auka eftirlit og hækka sektir við brotum, hvort heldur af hálfu ökumanns eða rekstraraðila. Það er vart til þjóðhagslega betri fjárfesting en skynsamlegar framkvæmdir í vegamálum. Bygging hálendisvegar og Sundabrautar er tvímælalaust dæmi um slíkar framkvæmdir. Mikilvægt er að raunhæft mat á umferðarmagni sé lagt til grundvallar við undirbúning framkvæmda. Vonandi geta stjórnvöld, sveitarfélög og fjárfestar, eins og lífeyrissjóðirnir, borið gæfu til þess að beina kröftum sínum að slíkum verkefnum og efla þannig innviði samgöngukerfisins til framtíðar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson Skoðun Mótmæli bænda í Brussel eru ekki sjónarspil – þau eru viðvörun Erna Bjarnadóttir Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir Skoðun Þegar gigtin stjórnar jólunum Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia skrifar Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Gengið til friðar Ingibjörg Haraldsdóttir,Elín Oddný Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Mótmæli bænda í Brussel eru ekki sjónarspil – þau eru viðvörun Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar gigtin stjórnar jólunum Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fullveldi í framkvæmd Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Verður Flokkur fólksins að Flótta fólksins? Júlíus Valsson skrifar Skoðun „Rússland hefur ráðist inn í 19 ríki“ - og samt engin ógn? Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Fæðuöryggi sem innviðamál í breyttu alþjóðakerfi Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Samstíga ríkisstjórn í sigri og þraut Kristrún Frostadóttir skrifar Skoðun Vextir á verðtryggðum lánum - ögurstund Hjalti Þórisson skrifar Skoðun Rokk í boði Ríkisins - möguleg tímaskekkja Stefán Ernir Valmundarson skrifar Skoðun Orkuskiptin sem engu máli skiptu Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Samtöl við þá sem hurfu of fljótt Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Flugvöllurinn í Reykjavík - fyrir landið allt Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Gamla fólkið okkar býr við óöryggi – kerfið okkar er að bregðast Valný Óttarsdóttir skrifar Skoðun Siðferðileg reiði er ekki staðreynd Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fiktið byrjar ekki sem sjúkdómur Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Jólagjöf ríkisstjórnarinnar Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Einfaldlega íslenskt, líka um jólin Hafliði Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Vönduð lagasetning á undanhaldi Diljá Matthíasardóttir skrifar Sjá meira
Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir Skoðun
Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar
Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar
Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar
Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar
Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir Skoðun